Næst verst geymda leyndarmál í snjallsímaheiminum verður opinberað þann 6. október næst komandi. Ásamt verst geymda leyndarmálinu. Hér er að sjálfsögðu verið að tala um Pixel 7 og 7pro, ásamt úrinu, Pixel Watch. Þetta er allt að fá formlega opinberun þó að við vitum nánast allt um þessi tæki. Símarnir fá nýjan örgjörva, Tensor G2, sem er nokkuð fyrirsjáanlegt, G fyrir Gen, en Google tekst engu að síður að koma stóru G fyrir í branding svona til að halda G-inu …
Category: Daglegt
Virkilega misgáfulegt raus.
Til allra sem þetta varðar, miðvikudaginn þann 7. September verður internetið og þá sérstaklega samfélagsmiðlar lítið nothæfir frá klukkan 16:30 að íslenskum tíma og eitthvað framá kvöld. Vonast er til að þjónusta verði komin í eðlilegt horf uppúr kl 20:00. Follow @elmarinn …
Í Maí 2019 risu margir í kringum mig uppá afturlappirnar því bankinn þeirra var ekki í hópi þeirra íslensku banka sem komu með kortin sín í Apple Pay, þessir vinir mínir þurftu að bíða í heila tvo mánuði með gnístandi tennur af bræði því bankinn þeirra var ekki með í þessari vegferð. Þetta lagaðist svo aftur í Júlí 2019. Það kom svo í ljós að bankinn þurfti að sitja undir alskonar vegna vandræða Master Card. En nú er öldin önnur, …
Eins og flestir lesendur vita þá hef ég verið að notast við Pixelbuds headfóna í nokkur ár, fór úr fyrstu kynslóðinni í kynslóð 2 og er núna kominn með pro útgáfu þessara headfóna. Þróunin hefur verið skynsamleg hjá Google, þó hún hafi verið aðeins hæg að mínu mati. Fyrsta kynslóðin var ekki alveg eins og best verður á kosið, þau lágu vel í eyrum með snúru á milli. Stóðu frekar langt út en hljómuðu vel þegar þau voru notuð innanhúss, …
Eins og áður þá hef ég sjaldnan getað beðið með að uppfæra öpp og önnur kerfi sem ég nota. Oftast er það svo að þegar Beta útgáfur Android byrja að rúlla út þarf ég að berjast við sjálfan mig að uppfæra ekki. Það tekst vanalega þangað til síðasta beta útgáfa viðkomandi Android stýrikerfis kemur út, það er oft ca 2-3 vikum áður en fyllbúin útgáfa birtist. Á þessu varð engin breyting í ár. Eins og oft áður þá gerist eitt …
Smá Android Chrome “leikur” fyrir alla sem nenna og hafa áhuga á. Leyfðu mér að kynna Floom, jebb Floom. Floom er eins og ég sagði, Chrome tilraun, aðeins í boði á Android. Leyfir okkur að horfa í gegnum jörðina með því að opna sýndargöng yfir á hina hliðina á jörðinni. Beint úr vafranum á símanum þínum. Tólið nýtir sér AR getu símans þíns ásamt Google Maps til að birta þessa töfra. er í boði á öllum nýjustu Android útgáfum, svo …
Núna þegar jarðskjálftar ríða yfir Reykjanesskagann þá fáum við íslendinar að kynnast virkni í Android sem kynnt var til leiks á Google I/O árið 2020 og rúllað út síðar það ár í Bandaríkjunum og hefur hægt og rólega verið rúlla út til annarra landa síðan. Allir símar dagsins í dag búa yfir hröðunarskynjara, nema sem nemur minnstu hreyfingar tæksins og hjálpa til við að segja stýrikerfinu hverni síminn snýr, hvort það sé verið að ganga, hjóla etc með símann og …
Eins og glöggir lesendur þessa örbloggs vita, þá eru miklar deilur í gangi á milli Google/Apple annarsvegar og þróunaraðila hinsvegar, þá er fyrst og fremst verið að tala um stóra aðila á borð við Netflix, Spotify og náttúrulega Epic. Deilan snýst um að þessir stóru aðilar, og fleiri, vilja fá leið til að gera notendum sínum kleyft að setja upp öpp á símum og spjaldtölvum framhjá AppStore og PlayStore og um leið greiða fyrir þjónustuna milliliðalaust. En í dag, ef …
Að venju er CES fyrsta tækniráðstefna ársins. Þetta hefur hægt og rólega verið að breytast í ráðstefnu fyrir bíla, sjónvörp og undarlegheit. Þessi meginstraums neytenda tækni hefur færst annað. Fyrirtækin farin að kynna vörurnar á sér eigin viðburðum oftast. Mögulega til að stjórna skilaboðunum betur. Þó þetta sé raunin er oft eitthvað áhugavert á CES, t.d. kynnir Samsung nýjann sveigðann tölvuskjá, og þó að mér finnist hugmyndin um sveigt sjónvarp skelfileg, þá er hugmyndin um sveigðan tölvuskjá frábær. Enda notkunartilfellin …
Nýjustu innlegg