Eins og á hverju ári, þá kemur nýr Pixel sími, þessi nær alla leið upp í 11. Ég hef átt, notað og elskað hvern og einn þeirra. En þessi nær sennilega uppá nýtt stig. Sjáum allavega til. Hér er örstutt kynning sem ég veit að þið eigið eftir að njóta vel. Það kemur allavega færsla um þetta nýjasta töfratæki þegar ég verð kominn með það í hendurnar. …
Category: Í fréttum
hugleiðingar vettvangi og annarsstaðar.
Nú er ég einn þeirra sem hef virkilega gaman af því sem ég er að gera í vinnunni, í reynd svo gaman að mér finnst vinnan ekki beinlínis vera vinna heldur virkilega gaman að mæta og leysa verkefni dagsins. Ég ætla að ganga svo langt að segja að mér leiðist í sumarfríi, en nú er svo komið að ég er búinn að vera 3 vikur rúmar og á tvær vikur tæpar eftir, það hjálpaði mér mikið að fá hluta af …
Jebb, fór aftur á sjóinn, í þetta sinn reyndar vötn og ár, sem samt. Húsbátur á leigu frá Spandau, sem er “úthverfi” frá Berlín, heitir eftir hinni frábæru hljómsveit Spandau Ballet. Samt sennilega ekki. Hér er hægt að fara í SlowCation og hreinlega djúpslaka. Ekkert plan, enginn áfangastaður né tímaáætlun. Takk fyrir mig, svona eiga frí að vera. …
VIð þekkjum þetta öll, á vinnustöðum eru tvær týpur af kaffi fólki, það eru kaffiperrarnir eins og ég, og svo hinir sem lifa einfaldlega á kaffi sama hversu staðið og soðið það er orðið. Við þekkjum þetta líka með uppáhellta kaffið, það er annarsvegar þetta sem einhver sem kann að hella uppá, hellir uppá og það er gott í nokkrar mínútur en stendur svo og hægsýður það sem eftir lifir dags, síðan er það hinn kaffi uppáhellarinn, þessi sem kann …
Núna styttist í að Ísland verði fyrsta landið til að slökkva alveg á 2G og 3G þjónustu farnetsrekenda. Flest Evrópulönd hafa nú þegar lokað eða eru amk langt komin með að slökkva á 3G þjónustu en ætla að halda 2G í gangi í nokkur ár í viðbót. Ísland fór aðeins aðra leið, og var lokið að slökkva á tækninni sem breytti heiminum, 2G eða GSM, í byrjun árs 2026. Nú hafa 2 af 3 farnetsrekendum nánast lokið við að loka …
Margir hafa reynt að útvega raunverulegt desktop umhverfi á farsíma, eða möguleikann á að breyta símanum þínum í vinnustöð fyrir daglega vinnu og svo aftur í símann þinn að degi loknum. Í Android 16, varð þessi möguleiki raunverulega þroskaður á Pixel símum, ég hef reynt þetta á sjálfum mér. En aðeins í einn dag, niðurstaðan er sú að með raunverulegri Linux skel er þetta viðmót valkostur við mína daglegu vinnu, en þó alls ekki eitthvað sem ég held að ég …
Blað sem ferðaðist með mér næstum því svo lengi sem ég man þangað til ég varð nánast gamalmenni. Eystrahorn er risið á ný og það er gleðiefni. Nú þarf að setjast yfir fjölmiðlastyrki Elmars og ath hverjum verður fórnað fyrir héraðsmiðil úr betri sýslunni. …
Okkar besti maður ákvað að byrja aftur að skrifa, það er gleðiefni. Ég fann það, að eftir að Elon Musk ákvað að kveikja í Twitter með bræðismella tjúningu á algríminu sínu, FB, varð endalaus uppspretta auglýsinga og ég latari með hverju árinu sem líður að eǵ vildi bara henda samhengislausum hugsunum útí loftið, sem mögulega einhver les, en sennilega fáir. Þarf ekki like eða emoji, heldur meira bara að losa mig við einhverja innbyggða tjáningarþörf án þess að búast við …
Ég las þessa fyrirsögn og hugsaði með sjálfum mér, “hmms, ekki man ég eftir neinum dóm yfir mér”. Og við lestur fréttarinnar kom það endanlega í ljós, það var ekki verið að fjalla um mig. Vildi bara að það kæmi fram hér til að taka af allann vafa, sér í lagi hjá þeim vinum mínum sem lesa bara fyrirsagnir. Ég er sannarlega ekki andlag þessarar fréttar. …
Nýjustu innlegg