VIð þekkjum þetta öll, á vinnustöðum eru tvær týpur af kaffi fólki, það eru kaffiperrarnir eins og ég, og svo hinir sem lifa einfaldlega á kaffi sama hversu staðið og soðið það er orðið. Við þekkjum þetta líka með uppáhellta kaffið, það er annarsvegar þetta sem einhver sem kann að hella uppá, hellir uppá og það er gott í nokkrar mínútur en stendur svo og hægsýður það sem eftir lifir dags, síðan er það hinn kaffi uppáhellarinn, þessi sem kann …
Category: Kaffi og Tilheyrandi
Ég er kaffifíkill, það má öllum vera ljóst, hugrenningar mínar um kaffi og all tsem því tilheyrir, kaffihús og neysla.
Ég á eitt áhugamál, utan þess að eignast farsíma reglulega. En það er Kaffi og neysla á kaffi, eftir því sem meira verður drukkið af kaffi kemst ég alltaf meira og meira á þá skoðun að Bialetti kaffivélarnar eru það sem málið snýst um. Þær skila einfaldlega að jafnaði bestu niðurstöðunum. Kaffið úr þeim er einfaldlega alltaf jafn gott. …
Nú þegar sumarhitinn hefur legið yfir landinu eins og mara (jebb létt grín) þá er fátt betra að köld uppáhelling. Kallt kaffi er nefnilega dásamlega góður drykkur og getur ekki klikkað, Uppáhellingarflaska frá Hario er þá algert möst. Kaffi í filterið, kallt vatn yfir og í ískáp í sólarhing. Svart og sykulaust kallt kaffi er eitt það besta sem við getum drukkið á þessum heitu sumarkvöldum. …
Það er vaninn að horfa um farinn veg og líðandi ár rétt fyrir gamlársdag, en ég kýs í þetta sinn að horfa fram á veginn í byrjun nýs árs. En þó með smá af því að horfa til baka. En árið 2022 var um margt gott ár fyrir mig persónulega, það byrjaði eins og hjá svo mörgum í einhverskonar samkomubanni, ég var heimavinnandi í nokkrar vikur í byrjun árs. En svo eins og hjá öllum þá bara hætti þetta og …
Það er langt síðan ég henti hérna inn færslu um kaffi pervertinn sem býr í mér. En eins og þeir sem þekkja mig vita, þá drekk ég ótæpilega mikið af kaffi. Tvöfaldur Espresso Macchiato er minn drykkur, og er fullkomin blanda af kaffi, með vott af mjólkurfroðu. Svona rétt til að taka mesta broddinn af kaffinu. Á íslandi erum við mjög rík af góðu kaffi, ekki nóg með að Reykjavík Roasters, Te og Kaffi og Kaffitár séu keðjur af hæsta …
Það er alltaf gaman að reyna að rýna í framtíðina og sjá hvað mun gerast, það er líka frábær leið til að setja eitthvað blað sem mun koma aftur og gefa fólki færi á að gera grín að þér. En ég ætla samt að prófa, og hugsanlega verða 1-2 þessara spádóma eitthvað sem ég get fullyrt að munu rætast á árinu. 5G verður ekki lífsnauðsyn á árinu. Ekki láta ljúga að þér, uppbygging á 5G mun hefjast á íslandi á …
Núna þegar nýtt ár er hafið, nýr áratugur líka kjósir þú lesandi góður að telja þannig, þá er ekki úr vegi eftir að hafa óskað öllum gleðilegs ár með þakklæti fyrir samfylgdina á árinu sem er að líða að kíkja aðeins á það sem stendur uppúr á þeim áratug sem nú er liðinn. Á þessum áratug sem nú er liðinn, urðu fjögur stærstu tæknifyrirtækin (Apple, Microsoft, Alphabet (Google) og Amazon) í heiminum enn stærri, aldrei áður í sögunni hafa 4 …
Þeir sem þekkja mig, vita að ég nýt þess að drekka kaffi. Sennilega meira en flestir. Minn bolli of choice er tvöfaldur Espressó macchiato, sem eins og allir eiga að vita er tvöfaldur Espressó, mengaður með smá mjólkurfroðu. Besti slíkur bolli á höfuðborgarsvæðinu fæst á Kaffi Laugarlæk, sem vill svo skemmtilega til að er einmitt í mínu nánasta nágrenni, mæli með því að allir lesendur vefritsins rúlli þar við fyrir bolla, og jafnvel eitthvað gott að borða. Frábær matur á …
Já, það er svo sannarlega gleðilegt þegar jólin ganga í garð og við/ég hjá litla vefritinu erum þar engin undantekning. Fyrir hönd vefritsins vil ég óska öllum lesendum nær og fjær gleðilegra jóla og farsæls komandi ár. Árið sem senn er liðið hefur reynst skemmtilegt, með mörgum nýjum græjum og leikföngum, komandi ár 2020 mun gera það sama, ég veit að ég mun eignast ný Pixelbuds sem ég hlakka til að segja ykkur frá, ég mun að öllum líkindum eignast …
Nýjustu innlegg