Þessi gamli brandari hefur verið mér ofarlega í huga undanfarnar vikur. Hann er ca svona: Maður nokkur var á ferð um afskekktan veg þegar sprakk á einu dekki bílsins og ekki annað að gera en skipta um dekk. Þegar hann ætlaði að grípa til tjakksins var hann ekki á sínum stað. Og nú voru góð ráð dýr. Hann svipaðist um og sá að talsvert innar í dalnum var bóndabær. Þess fullviss að þar fengi hann tjakk lánaðan gekk hann af …
Category: Pólitík
Rant um pólitík.
Ég elska að nota strætó til að komast leiðar minnar, ég nota hann nánast daglega til að komast í og úr vinnu. Það virkar, ég kem við á heimleiðinni og kaupi í matinn, þetta er ekki stórmál. Það sem þarf að bæta er áreiðanleiki og tiltækileiki. Það þurfa fleiri að eiga kost á því að losna undan því að reka einn bíl utan um hvert bílpróf á heimilinu. Því þarf Strætó einfaldlega að virka, fleiri þurfa að upplifa þá ró …
Núna eftir sveitarstjórnarkosningar verður rótað upp mjög miklu ryki um spurningu sem í reynd skiptir engu máli varðandi framtíð íslands. Að því leytinu til að já við spurningu sem stendur til að spyrja 29. Ágúst breytir engu á íslandi, og nei breytir í sjálfu sér engu heldur, öðru en því að þá er búið að taka einn valkost af borðinu fyrir okkur sem samfélag. Fyrir mína parta er mjög einfalt að segja já í ágúst en, fari svo að já …
Það stendur loksins til að uppfylla kosningaloforð tveggja stjórmálaflokka frá árinu 2013, í aðdraganda þeirra kosninga lofuðu báðir þáverandi formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við ESB um aðild íslands að því sambandi, þetta var loforð sem þeir áttu mjög auðvelt með að svíkja eftir að talið var uppúr kjörkössunum. Þetta mun verða auðveldasta ákvörðin mín varðandi afstöðu frá því að ég kaus fyrst. Að sjálfsögðu mun ég kjósa með þeirri tillögu að taka upp …
Nú er verið að ath með eftirspurn eftir Guðlaugi Þór í borgarstjórn, sem þá borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, fyrir mitt leiti þá má segja að hér á vefritinu sé áhugi “núll”. Follow @elmarinn …
Það virðist vera einhver smá íhaldsbylgja á leiðinni í íslenskum stjónmálum, sem er gott og blessað og ekkert athugavert við að vera íhaldssamur, ekki frekar en frjálsyndir eða hvað það er þar á milli. En þurfa þessir nýíhaldsmenn alltaf að vera svona leiðinlegir? Leiðinlegur talandi, lélegt spaug, bara almenn leiðindi. Lífið er ekki svona erfitt. Follow @elmarinn …
Það er vaninn að horfa um farinn veg og líðandi ár rétt fyrir gamlársdag, en ég kýs í þetta sinn að horfa fram á veginn í byrjun nýs árs. En þó með smá af því að horfa til baka. En árið 2022 var um margt gott ár fyrir mig persónulega, það byrjaði eins og hjá svo mörgum í einhverskonar samkomubanni, ég var heimavinnandi í nokkrar vikur í byrjun árs. En svo eins og hjá öllum þá bara hætti þetta og …
Google virðist hafa enduruppgötvað fyndnina sína, í nýjustu auglýsingu Google fyrir Pixel 5a, nýjasta síma fyrirtækisins virkjar Google sinn innri Jony Ive. Aulýsingin er dásamlega fyndin. En þeir skilja sem skilja. En fyrir áhugasama þá er auglýsingin hér fyrir neðan. Sjón er sögu ríkari. Það er kostur, fyrir suma amk og ég þar á meðal að hafa þetta tengi á símanum sínum. Þetta segi ég þrátt fyrir að hafa ekki átt síma með þessu tengi í nokkurn tíma. Fyrir mér …
Ekki að ég taki það neitt sérstaklega til mín þegar talað er af háði um “latté lepjandi” hina og þessa, en vanalega er 101 pakk þarna einhversstaðar líka. Ég bý ekki lengur í 101 og ég hef aldrei drukkið latté. En það er samt ágætt að benda á það þegar svona háð er byggt á leiðinda misskilningi, þá bið ég hlutaðeigandi vinsamlegast um að lesa þessa grein hér. Þið sem viðhafið téð orðbragð þurfið s.s. ekki að hafa neina minnimáttarkennd lengur …
Nýjustu innlegg