Eins og glöggir lesendur þessa örbloggs vita, þá eru miklar deilur í gangi á milli Google/Apple annarsvegar og þróunaraðila hinsvegar, þá er fyrst og fremst verið að tala um stóra aðila á borð við Netflix, Spotify og náttúrulega Epic. Deilan snýst um að þessir stóru aðilar, og fleiri, vilja fá leið til að gera notendum sínum kleyft að setja upp öpp á símum og spjaldtölvum framhjá AppStore og PlayStore og um leið greiða fyrir þjónustuna milliliðalaust. En í dag, ef …
Category: Tech
Ég er Tech junkie, hugrenningar um allt um tækni.
Eins og áður þá hefur Google gengið mjög illa að halda hlutum útaffyrir sig, það lekur bókstaflega allt sem þau ætla sér að kynna. Staðan er sú að ég hreinlega man ekki eftir því tæki sem Google sendi frá sér sem ekki hafði fengið óhólflega lekaumfjöllun, við vitum bókstaflega allt nema mögulega verðið svona ca 2-3 vikum áður en eitthvað kemur frá þeim. Google mun halda sinn árlega I/O viðburð skv venju undir lok Maí. Allar líkur á blönduðum online …
Að venju er CES fyrsta tækniráðstefna ársins. Þetta hefur hægt og rólega verið að breytast í ráðstefnu fyrir bíla, sjónvörp og undarlegheit. Þessi meginstraums neytenda tækni hefur færst annað. Fyrirtækin farin að kynna vörurnar á sér eigin viðburðum oftast. Mögulega til að stjórna skilaboðunum betur. Þó þetta sé raunin er oft eitthvað áhugavert á CES, t.d. kynnir Samsung nýjann sveigðann tölvuskjá, og þó að mér finnist hugmyndin um sveigt sjónvarp skelfileg, þá er hugmyndin um sveigðan tölvuskjá frábær. Enda notkunartilfellin …
Það er eiginlega að bera í bakkafullann lækinn að fara að skrifa eitthvað um sjónvörp og skjátækni. But here goes. Leikmannshugleiðingar um skjátækni. Til að byrja með, þá er best að útskýra á hundavaði muninn á OLED og LED (eða jafnvel síðari QLED) tækni, en í grunninn snýst þetta um hvernig dílar eru lýstir upp, OLED notast við filmu sem leggst á milli tveggja leiðara og gefur sjálf frá sér ljós sem lýsir upp dílinn þegar straumur fer í gegnum …
Eins og alþjóð veit, þá er ég ekki á snjallúravagninum. Hef sennilega oftar en talið verður kallað þau lausn í leit að vandamáli. Mögulega snýst þessi andúð mín um að “rétta” fyrirtækið hefur ekki verið að bjóða uppá úralausn hingað til. Mögulega hef ég bara óvart haft rétt fyrir mér í fordómum mínum. Aðeins framtíðin mun segja til um það. En staðfesta mín fær að öllum líkindum alvöru prófraun á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Þar sem sögurnar segja að Google …
Sem mikill aðdáandi, og notandi, Almenningssamgagna varð ég mjög glaður þegar Strætó bauð mér að taka þátt í prófunarhóp Klappsins, sem er nýtt greiðslukerfi fyrir Strætó. Stóra breytingin er kanski sú að í stað þess að láta bílstjórann bera þá ábyrgð að staðfesta greiðslu fargjalds, er miðinn einfaldlega skannaður og skanninn gefur til kynna hvort fargjald hafi verið greitt eða ekki. Þetta er aðferð sem fólk á það þekkja frá London með notkun á Oystercard. Eða í Skandinavíu. Sennilega er …
Þeir eru ófáir dálksentimetrarnir af lekum varðandi nýjustu síma Google, en í dag fengu þeir formlega kynningu frá fyrirtækinu, þetta var þessi upplýsingaauglýsing sem við höfum fengið að kynnast á covid tímum, streymt á YouTube rás Google. Það var svosem ekki mikið sem við ekki vissum, en við bíðum enn eftir formlegum dómum tæknisíða í bandaríkjunum. Mjög margir símar komnir í hendur á blaðamönnum en þeir hafa ekki fengið að fjalla almennilega um tækin, annað en að segja frá helstu …
Okkar allra besti Evan Blass hefur verið mjög öflugur undanfarnar vikur við að komast yfir Pixel upplýsingar og deilt þeim með okkur, í þessum síðasta hefur hann komist yfir risavaxna rendera, myndir af hlustrunum og lifestyle markaðsefni. Nú er svo komið að hann á sennilega bara eftir að komast yfir upptökurnar sem sýndar verða þann 19. okt, en eins og með aðra viðburði á covid tímum þá á ég von á infomercial viðburði, þar sem flestar kynningar hafa verið teknar …
Nýlega í Tæknivarpinu vorum við félagarnir að ræða Surface á íslandi og aðgengi að þeim. Það er vissulega ákveðin áskorun að nálgast þessi tæki en fyrir áhugasama þá er það alveg framvkæmanlegt. Nýlega fékk ég tam að Surface Laptop Go til láns sem er nett “sófavél” með 12,4″ skjá og inni erum við að tala um intel i5 1035G1 örgjörva með 8GB í vinnsluminni. Uppgefið segir Microfoft að vélin nái 13tímum á rafhlöðu, það er ekki mín upplifun en ég …
Nýjustu innlegg