Eins og þið vitið öll, þá er ég mjög áhugasamur um Pixel síma Google. Þetta eru einfaldlega þau tæki sem ég dái hvað mest. Núna er staðan sú að ég er haldinn því sem á fagmálinu er kallaður Græjukláði. Þetta er sama vandamál og ég átti við að etja sem barn og var að bíða eftir jólunum og hún Svala Björgvinsdóttir lýsir svo vel í laginu Ég hlakka svo til. þar sem söguhetjan leiðir okkur í gegnum þjáninguna sem felst …
Author: elmar
Það vita það allir sem þekkja mig að ég á ekki iPhone, ég hef aldrei átt slíkt og hef ekki hug á að eiga slíkt tæki. Hinsvegar gerðist það núna nýlega að mér var afhent slíkt tæki, iPhone 14, nýjasti base iPhoneinn sem ég hef fengið að leika mér að í nokkra daga. Ég vil byrja á að þakka Macland fyrir lánið. En það er best að setja nokkrar hugleiðingar um þetta tæki niður svona áður en ég verð látinn …
Næst verst geymda leyndarmál í snjallsímaheiminum verður opinberað þann 6. október næst komandi. Ásamt verst geymda leyndarmálinu. Hér er að sjálfsögðu verið að tala um Pixel 7 og 7pro, ásamt úrinu, Pixel Watch. Þetta er allt að fá formlega opinberun þó að við vitum nánast allt um þessi tæki. Símarnir fá nýjan örgjörva, Tensor G2, sem er nokkuð fyrirsjáanlegt, G fyrir Gen, en Google tekst engu að síður að koma stóru G fyrir í branding svona til að halda G-inu …
Til allra sem þetta varðar, miðvikudaginn þann 7. September verður internetið og þá sérstaklega samfélagsmiðlar lítið nothæfir frá klukkan 16:30 að íslenskum tíma og eitthvað framá kvöld. Vonast er til að þjónusta verði komin í eðlilegt horf uppúr kl 20:00. Follow @elmarinn …
Í Maí 2019 risu margir í kringum mig uppá afturlappirnar því bankinn þeirra var ekki í hópi þeirra íslensku banka sem komu með kortin sín í Apple Pay, þessir vinir mínir þurftu að bíða í heila tvo mánuði með gnístandi tennur af bræði því bankinn þeirra var ekki með í þessari vegferð. Þetta lagaðist svo aftur í Júlí 2019. Það kom svo í ljós að bankinn þurfti að sitja undir alskonar vegna vandræða Master Card. En nú er öldin önnur, …
Eins og flestir lesendur vita þá hef ég verið að notast við Pixelbuds headfóna í nokkur ár, fór úr fyrstu kynslóðinni í kynslóð 2 og er núna kominn með pro útgáfu þessara headfóna. Þróunin hefur verið skynsamleg hjá Google, þó hún hafi verið aðeins hæg að mínu mati. Fyrsta kynslóðin var ekki alveg eins og best verður á kosið, þau lágu vel í eyrum með snúru á milli. Stóðu frekar langt út en hljómuðu vel þegar þau voru notuð innanhúss, …
Eins og áður þá hef ég sjaldnan getað beðið með að uppfæra öpp og önnur kerfi sem ég nota. Oftast er það svo að þegar Beta útgáfur Android byrja að rúlla út þarf ég að berjast við sjálfan mig að uppfæra ekki. Það tekst vanalega þangað til síðasta beta útgáfa viðkomandi Android stýrikerfis kemur út, það er oft ca 2-3 vikum áður en fyllbúin útgáfa birtist. Á þessu varð engin breyting í ár. Eins og oft áður þá gerist eitt …
Smá Android Chrome “leikur” fyrir alla sem nenna og hafa áhuga á. Leyfðu mér að kynna Floom, jebb Floom. Floom er eins og ég sagði, Chrome tilraun, aðeins í boði á Android. Leyfir okkur að horfa í gegnum jörðina með því að opna sýndargöng yfir á hina hliðina á jörðinni. Beint úr vafranum á símanum þínum. Tólið nýtir sér AR getu símans þíns ásamt Google Maps til að birta þessa töfra. er í boði á öllum nýjustu Android útgáfum, svo …
Núna þegar jarðskjálftar ríða yfir Reykjanesskagann þá fáum við íslendinar að kynnast virkni í Android sem kynnt var til leiks á Google I/O árið 2020 og rúllað út síðar það ár í Bandaríkjunum og hefur hægt og rólega verið rúlla út til annarra landa síðan. Allir símar dagsins í dag búa yfir hröðunarskynjara, nema sem nemur minnstu hreyfingar tæksins og hjálpa til við að segja stýrikerfinu hverni síminn snýr, hvort það sé verið að ganga, hjóla etc með símann og …
Nýjustu innlegg