Stadia Founders edition

Í dag pantaði ég mér Stadia Founders edition. Fyrir þá sem ekki vita, þá er Stadia streymisleikjaþjónusta Google sem verður hleypt af stokkunum í Nóvember. En þeir sem þekkja mig þá er ég ekki mikill leikjaáhugamaður, en það getur vel breyst í svona casual gaming hjá mér, t.d. í sumarbústað eða eitthvað slíkt. Til að byrja með reikna ég með að ég þurfi að dulbúast sem Þjóðverji þangað til Stadia verður í boði á Íslandi. Stadia áskrift er tvennskonar, það

Continue Reading

Aðeins af Jony Ive

Vissulega er það svo að ég persónulega er enginn sérstakur aðdáandi Apple, en mér finnst samt viðeigandi að setja nokkur orð á blað um þennan áhrifamikla mann innan Apple sem nú hefur stigið (verið ýtt?) til hliðar. Jony Ive hafði sem megin hönnuður Apple mikil áhrif og ásamt Steve Jobs gerðu þeir það að verkum að tölvur og tæknihlutir sem við notum í daglegu lífi okkar urðu að fallegum hlutum sem fólk þurfti ekki endilega að fela einhversstaðar. Þeir unnu

Continue Reading

Google IO 2019

Núna í byrjun maí er Google IO sem er sá vettvangur sem Google notar til að kynna það nýjasta sem fyrirtækið er að vinna að og þau tól sem eiga að gera lífið auðveldara, þarna kynnir fyrirtækið nýjasta nýtt í Android og fleira í þeim dúr. Í fyrra var Google Duplex t.d. kynnt, en duplex er næsta skref þróunar á Google Assistant, með duplex hefur aðstoðarmaðurinn öðlast rödd og getu til að verða raunverulegur aðstoðarmaður, hann getur bókað borð á

Continue Reading

Big boy move af hálfu Netflix

Glöggir lesendur vita sem er að fyrir nokkrum vikum uppgötvaði MacRomurs að Netflix hefði hljóðlega fjarlægt AirPlay spilunar möguleika úr iOS öppum sínum. Þetta er aðgerð sem gerir það að verkum að iOS notendur neyðast til að nota TVOS app (eða Netflix appið sem kemur uppsett á snjallsjónvarpinu þínu) Netflix, til að neyta Netflix efnis. Hér vantar smá forsögu og kaldhæðni. Í fyrsta lagi er Netflix að gera nokkra hluti hérna eins og að taka aftur stjórnina á upplifun sinna

Continue Reading

Hinn fullkomni samfélagsmiðill.

Til að byrja með er best að viðurkenna það strax að ég er notandi samfélagsmiðla, ég elska Twitter, ég var mikill aðdáandi instagram, ég elskaði Google+ og ég nota Facebook og SnapChat. Augljóslega er mikill munur á því hvernig ég nota þessa miðla, en ég get þó fullyrt að vera mín á Facebook er fyrst og fremst vegna þess að í gegnum það tól er megnið af tómstundum dætra minna skipulögð. Hina miðlana nota ég mismikið, en Twitter þó mest,

Continue Reading

Hitt skiptið sem mamma reyndi að drepa pabba minn.

Nokkrir vinir mínir hafa heyrt söguna af hinu skiptinu sem mamma reyndi að drepa pabba minn. Eitthvert skiptið sem hann átti afmæli, ætlaði hann að gera vel við vinnufélaga sína og gefa þeim köku í tilefni dagins. Það var bökuð þessi glæislega kaka kvöldið áður, og þegar kom að því að fara með hana í vinnuna á afmælisdaginn ætlaði hann að grípa með sér lítinn og sakleysislegann borðhníf til að skera herlegheitin niður á diska handa vinnufélögunum. Þegar móðir rak

Continue Reading

Smá pepp.

Eins og allir sem þekkja mig vita, þá hef ég skelfilega mikinn áhuga á fjarskiptum og öllu sem þeim viðkemur. Ég vinn við fjarskipti og hugsa um þau nánast alla daga. Ég sit ásamt nokkrum öðrum frábærum einstaklingum í hóp hjá Skýrslutæknifélaginu þar sem við skipuleggjum umræður og fundi um fjarskipti. Ekki síst til að gera umræðuna aðgengilegri. Þann 6. Mars næstkomandi er einmitt einn slíkur fundur. Ég hvet alla sem vetlingi geta valdið að mæta og fræðast um 5G

Continue Reading

Ég hafði áhrif, örsaga af þeim.

Á undanförnum vikum hafa tvö ofurlítil atriði komist til afgreiðslu þar sem ég hafði á minn hátt ofurlítil áhrif, fyrra atriðið var athugasemd við frumvarp til laga um fjarskipti sem óskað var eftir, athugasemdina átti ég þátt í að semja og varðaði vissulega mjög afmarkað atriði en verður til bóta að mínu áliti og rann að lokum inní frumvarpið og er núna orðið að lögum frá Alþingi. Hitt atriðið átti sér skemmri en samt lengri aðdraganda, en á hverju ári

Continue Reading

Reynslan

Jájá… ÉG veit, það eru allir komnir með nóg, en ég var nú samt með Pixelbókina mína á UTMessunni til að taka niður minnispunkta etc. fyrir sjálfann mig og hugsanlega aðra og niðurstaðan er sú að þetta er frábær vél til að nota á svona eventum, það fer lítið fyrir henni þannig að hún er ekki fyrir manni í þéttsetnum sal, hún er það létt að hún dregur mann ekki niður, og síðan er hún bara falleg… Tæki sem maður

Continue Reading

Site Footer

Sliding Sidebar