Jólakveðja.

Vefritið hefur legið í dvala mestann part ársins 2012, það þýðir ekki að það muni leggja upp laupana, þvert á móti kemur það til með að rísa eins og fuglinn fönix úr öskustónni, hvort það verður á komandi ári er alls óvíst, en engu að síður langar vefritinu að óska vinum ættingjum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla, friðar og farsældar á komandi ári. Hér er eldaður Hamborgarhryggur að A-Skaftfellskum sið. Með öllu því sem hin gamla herraþjóð kenndi okkur að

Continue Reading

Akkúrat fimm ára.

Fyrir akkúrat 5 árum fæddist stóra stelpan mín, stelpan sem hefur gert líf okkar ríkara en okkur hefði órað fyrir. Hún kom okkur á óvart þessi elska, eins og svo oft síðan, tveim vikum fyrir tímann. Ég man að ég var á leiðinni á Eldsmiðjuna að sækja Pizzu þegar Steffi hringdi í mig og tilkynnti mér að ég þyrfti að vera fljótur það væri nefnilega kominn pollur á gólfið okkar. Til hamingju með daginn þinn engillinn minn.

Continue Reading

Site Footer

Sliding Sidebar