Fyrir akkúrat 5 árum fæddist stóra stelpan mín, stelpan sem hefur gert líf okkar ríkara en okkur hefði órað fyrir. Hún kom okkur á óvart þessi elska, eins og svo oft síðan, tveim vikum fyrir tímann. Ég man að ég var á leiðinni á Eldsmiðjuna að sækja Pizzu þegar Steffi hringdi í mig og tilkynnti mér að ég þyrfti að vera fljótur það væri nefnilega kominn pollur á gólfið okkar. Til hamingju með daginn þinn engillinn minn. Follow @elmarinn …
Blog Posts
Þegar ég bjó heima á Hornafirði fór óhemju mikill tími í spil, á þeim vinnustöðum sem ég vann á voru mörg spil spiluð, Kani, Vist, Hornafjarðar-manni, Togara berta til að nefna nokkur, og það sem ég náði mestum árangi í. Kasína. Í Smugunni á Andey, varð ég til að mynda norður Atlantshafsmeistari í Kasínu. Kasína er gott og skemmtilegt tveggja manna spil, spil sem reynir aðeins að reikningsgetu og fleira sem öllum er hollt að reyna á af og til. …
IBU er alþjóðleg mælieining, kanski ekki sú þekktasta, en mikilvæg engu að síður, skammstöfunin stendur fyrir International Bitterness Unit og mælir biturleika í bjór. Vissulega er það svo að imperial stout með 50 í IBU getur bragðast minna bitur en English Bitter með 30 í IBU, en það er kanksi frekar vegna þess hve mikið meira malt er í þeim fyrrnefnda. BorgBrugghús framleiðir uppáhalds bjórinn minn þessa dagana, reyndar virðist þeim vera fyrirmunað að slá feilpúst, en Úlfur er alveg …
Nýjustu innlegg