Ég er núna búinn að vera með Pixel Fold í rúmlega viku, tæki sem ég hef haft gaman af síðan það kom í hendurnar á mér. Auðvitað hjálpar að stýrikerfið er það sama og ég hef notað lengi og þekki, nálgun Google á Android. Því ekki er hægt að tala stock Android eða eitthvað slíkt frá því að Google setti Pixel línuna á markað. Stock Android er enn til og er notað af mörgun til að keyra allskonar tæki. Pixel …
Category: Á náttborðinu
Hvað er ég að lesa á hverjum tíma.
Lengi hef ég haft áhuga á að eignast samanbrjótanlegann síma, en hingað til ekki tímt vel norðan við 350þús fyrir slíkt tæki. Það var því með mikilli ánægju þegar ég rakst á notaðan fyrstu kynslóðar Pixel Fold á ebay fyrir lítinn pening og var hægt að koma í hendurnar á mér fyrir engann pening, sá kom út fyrir 3 árum núna og er enn að fá uppfærslur. Eftir að hafa dundað mér með símann núna í nokkra daga þá verði …
Okkar besti maður ákvað að byrja aftur að skrifa, það er gleðiefni. Ég fann það, að eftir að Elon Musk ákvað að kveikja í Twitter með bræðismella tjúningu á algríminu sínu, FB, varð endalaus uppspretta auglýsinga og ég latari með hverju árinu sem líður að eǵ vildi bara henda samhengislausum hugsunum útí loftið, sem mögulega einhver les, en sennilega fáir. Þarf ekki like eða emoji, heldur meira bara að losa mig við einhverja innbyggða tjáningarþörf án þess að búast við …
Ég ólst upp með jólahefðir eins og allir aðrir, mjög hefðbundið landsbyggðar barn, fékk aldrei lykil að útidyrahurðinni af því að það var alltaf opið og fleira í þeim dúr. Ég á það enn til að gleyma að læsa hurðinni heima hjá mér, af því að þetta er svo sterkt í mér. En á jólunum var alltaf möndlugrautur, fyrst var hann sem forréttur, en það uppgötvaðist fljótt að hann er of mettandi til að passa sem forréttur, það voru allir …
Það vita það allir sem þekkja mig að ég er mikill Green Day aðdáandi, Það er eitthvað við laga og textasmíð Billie Joe Armstrong sem einfaldlega grípur mig, hann hefur einstakann hæfileika að finna rétta “hook”ið og spinna út frá því. Vissulega ekki flóknasta lagasmíð sem sögur fara af, en með ákveðinn brodd sem mikilvægur er. Það eru 20 ár síðan hin stórbrotna plata American Idiot var gefin út, og kemur því hér í sérstakri útgáfu, þetta er fagnaðarefni og …
Þeir sem þekkja mig, vita að ég nýt þess að drekka kaffi. Sennilega meira en flestir. Minn bolli of choice er tvöfaldur Espressó macchiato, sem eins og allir eiga að vita er tvöfaldur Espressó, mengaður með smá mjólkurfroðu. Besti slíkur bolli á höfuðborgarsvæðinu fæst á Kaffi Laugarlæk, sem vill svo skemmtilega til að er einmitt í mínu nánasta nágrenni, mæli með því að allir lesendur vefritsins rúlli þar við fyrir bolla, og jafnvel eitthvað gott að borða. Frábær matur á …
Það ætti ekki að koma neinum lesanda vefritsins á óvart að ég sé áhugamaður um Pixel símana frá Google. Ég hef átt þá alla, í XL útgáfunni, utan 3a, sem miðju dóttir mín fékk í venjulegu útgáfunni. Frá upphafi snerist Pixel verkefnið frekar snúist um að veita notendum bestu mögulegu upplifun af Android, frekar en að haka í einhver spekka box. Vissulega hafa símarnir alltaf verið vel spekkaðir, en aldrei í alveg efstu hillu. Símarnir hafa frá upphafi t.d. verið …
Að vanda er það Þýskaland sem varð fyrir valinu sem sumaráfangastaður fjölskyldunnar. Í notalegum sumarhita 25° á Celsíus er fátt sem jafnast á við Þýskaland að sumri. Planið er hvíld, ferðalög og meiri hvíld, ásamt lestri góðra bóka og lærdóms. Er hægt að biðja um það betra? Einmitt já, hlusta á mikið af tónlist heimsækja fjölskyldu og vini og gera allt það sem þarf til að endurnæra andann. …
Ég er mikill áhugamaður um lestur, og les mikið. Undanfarin ár hefur þessi lestur færst mikið í stafrænt form. Þó svo að það sé ekki jafn gaman að sitja með rafbók og hefbundna bók. En sérstaklega þegar verið er að ferðast þá er þetta form einfaldlega heppilegra. Eins verður að segjast eins og er að verð spilar mikið inní, nema þegar kemur að íslenskum bókum, þar sem rafræna útgáfan kostar alla jafna jafn mikið og innbunda útgáfan, þetta er eitthvað …
Nýjustu innlegg