Nýlega rakst ég á stórkostlegan pistil um lyfleysu fíkn, viðkomandi skrifar hann útfrá hljómburðarástarblætis (er þetta einusinni orð?) tímabili í lífi sínu, en það má heimfæra þetta uppá hvaða fíkn sem er raunverulega. Follow @elmarinn …
Blog Posts
Þá ætla ég að gefa henni, eða kanski meira okkur, svona. Allavega eitthvað í þessum dúr. Það er bara svo lengi sem maður getur kveikt á ljósaperu með sítrónu og látið barnið úa og aa. Follow @elmarinn …
The Verge, sem að mínu mati er með betri vefritum í dag, færir okkur þær sorglegu fréttir að einn af mínum uppáhalds leikurum hafi fundist látinn á heimili sínu 46 ára gamall. Hann var óborganlegur sem Lester Bangs í Almost Famous. Hann var æðislegur í Punch-Drunk Love og langsamlega það allra besta sem sást í Along came Polly. Philip Seymour Hoffman skilur eftir sig skarð. Follow @elmarinn …
Í ár eru 10 ár síðan Bandaríkjamenn töpuðu sakleysi sínu, það eru tíu ár síðan heimurinn breyttist varanlega fyrir 90 milljón sjónvarpsáhorfendur, það eru 10 ár síðan litla systir Michael Jackson flassaði heimsbyggðina í hálfleik í SuperBowl, í tilefni af því hefur ESPN tekið saman stutt myndband þar sem farið er ítarlega yfir 9/16 úr sekúndu úr lífi okkar allra. Follow @elmarinn …
Þá er hérna komin mjög svo fróðleg lesning um 5G. En það verður samt að segjast að sú staðreynd að ég er að ná reglulega uþb 100 Mbits til mín og 40 Mbits frá mér á LTE er alveg hreint unaður. Kúdós á Símann fyrir að skilja um hvað málið snýst. Follow @elmarinn …
Það er ekki langt síðan ég keypti mér nýtt sjónvarp, það var að vísu ekki merkilegt til þess að gera, 40″ heimskt og án veggfestingar, en Full HD þó. Síðan þá hafa tvö trend verið mjög yfirgripsmikil er varða Sjónvörp, annarsvegar var það þrívíddar sjónvarpið sem er með hallærilegri hugmyndum sem ég man eftir að hafa heyrt, hin er hygmyndin um snjall sjónvarp. Nú veit ég ekki um kosti þess að eiga slíkt tæki en þegar ég hugsa til þess …
Undanfarið hefur Egill Helgason og fleiri verið að vinna útfrá grein Þórs Whitehead í Sögu um “ástandið” Sjá hér, og hér meðal annars. Nú er ég ekki svo gamall að ég muni þessa tíma en ég ólst nú samt upp í þorpi í nálægð við herstöð og þessi hugsanaháttur sem Þór skrifar svo um var svo greinilegur í því litla samfélagi sem ég ólst uppí. Lýsti sér best í því að hermennirnir fengu ekki að fara í sund í þorpinu. Follow …
Það fyrsta sem gerist á nýju ári, svona fyrir utan þetta hefðbundna, þá opnast nýr kafli í Moleskin blætinu mínu, ég opna nýja dagbók til að halda utan um það sem ég er að vinna í það og það skiptir, hver það er sem borgar etc. Alltaf tilefni til tilhlökunar. Ég klára jólagjafaflóðið af bókum og legg grunn að því hvað mig langar að lesa þegar líður á árið. Google Books að gera fína hluti þarna, sorrý ebaekur.is, appið ykkar …
Eins og þeir sem þekkja mig vita þá er ég mikill áhugamaður um vínyl og á orðið nokkuð myndarlegt safn sem ég get kanski helst þakkað vini mínum honum Herði, en einnig öðrum vinum og vandamönnum. Þetta er svona áhugamál sem fyllir lífið af einhverju skemmtilegu, það er eitthvað við það að setjast niður með albúm, smella nálinni niður og garfa í albúminu, ásamt því að platan fái að rúlla, að njóta hennar í heild sinni. Nú er það vissulega …
Nýjustu innlegg