Nú hefur Netflix sagt markaðnum hvernig gekk á síðasta fjórðungi, tekjur á hressilegri uppleið, áskrifendum fjölgar, og eru núna rúmlega 158milljón á heimsvísu. Sennilega hefur 3 sería af Stranger Things haft jákvæð áhrif á streymisrisann. En núna þegar Netflix hefur staðið í samkeppni við aðrar sreymisveitur á borð við Hulu, Amazon Prime, YouTube og línulega dagskrá í áratug fær Netflix að kenna á alvoru samkeppni, Disney sem á allt efni undir sólinni nánast setur Disney+ í “loftið” 12 Nóvember fyrir …
Category: Í fréttum
hugleiðingar vettvangi og annarsstaðar.
Einhverntíman sagði ég frá hinu skiptinu sem mamma reyndi að drepa pabba minn. Það var mögulega ekki jafn dramatískt og það hljómaði í upphafi, og sennilega þetta fyrra skipti ekki heldur. En þeir sem þekkja mig vita að ég elska kaffi, ég drekk mikið af því, en þó ekki nándar nærri jafni mikið og pabbi minn. Það hefur mögulega gerst nokkrum sinnum t.d. að hann hafi vaknað upp um miðja nótt til að fá sér einn bolla af svörtu kaffi, …
Nú þegar ca tveir mánuðir (einn og hálfur til tveir og hálfur, eru í að Google Stadia verði hleypt af stokkunu er spenningur farinn að gera vart við sig. Google stríðir okkur með fréttum af því að Stadia Founders edition pakkarnir séu uppseldir í flestum löndum Evrópu (sem fá þjónustuna). Fyrir þá sem ekki vita, inniheldur Founders Edition: Sérstakann controller, í miðnætur bláum lit, Chromecast Ultra, 3. mánaða áskrift að Stadia Pro, Destiny 2 í heild sinni. Að auki inniheldur …
Í dag pantaði ég mér Stadia Founders edition. Fyrir þá sem ekki vita, þá er Stadia streymisleikjaþjónusta Google sem verður hleypt af stokkunum í Nóvember. En þeir sem þekkja mig þá er ég ekki mikill leikjaáhugamaður, en það getur vel breyst í svona casual gaming hjá mér, t.d. í sumarbústað eða eitthvað slíkt. Til að byrja með reikna ég með að ég þurfi að dulbúast sem Þjóðverji þangað til Stadia verður í boði á Íslandi. Stadia áskrift er tvennskonar, það …
Vissulega er það svo að ég persónulega er enginn sérstakur aðdáandi Apple, en mér finnst samt viðeigandi að setja nokkur orð á blað um þennan áhrifamikla mann innan Apple sem nú hefur stigið (verið ýtt?) til hliðar. Jony Ive hafði sem megin hönnuður Apple mikil áhrif og ásamt Steve Jobs gerðu þeir það að verkum að tölvur og tæknihlutir sem við notum í daglegu lífi okkar urðu að fallegum hlutum sem fólk þurfti ekki endilega að fela einhversstaðar. Þeir unnu …
Núna í byrjun maí er Google IO sem er sá vettvangur sem Google notar til að kynna það nýjasta sem fyrirtækið er að vinna að og þau tól sem eiga að gera lífið auðveldara, þarna kynnir fyrirtækið nýjasta nýtt í Android og fleira í þeim dúr. Í fyrra var Google Duplex t.d. kynnt, en duplex er næsta skref þróunar á Google Assistant, með duplex hefur aðstoðarmaðurinn öðlast rödd og getu til að verða raunverulegur aðstoðarmaður, hann getur bókað borð á …
Glöggir lesendur vita sem er að fyrir nokkrum vikum uppgötvaði MacRomurs að Netflix hefði hljóðlega fjarlægt AirPlay spilunar möguleika úr iOS öppum sínum. Þetta er aðgerð sem gerir það að verkum að iOS notendur neyðast til að nota TVOS app (eða Netflix appið sem kemur uppsett á snjallsjónvarpinu þínu) Netflix, til að neyta Netflix efnis. Hér vantar smá forsögu og kaldhæðni. Í fyrsta lagi er Netflix að gera nokkra hluti hérna eins og að taka aftur stjórnina á upplifun sinna …
Til að byrja með er best að viðurkenna það strax að ég er notandi samfélagsmiðla, ég elska Twitter, ég var mikill aðdáandi instagram, ég elskaði Google+ og ég nota Facebook og SnapChat. Augljóslega er mikill munur á því hvernig ég nota þessa miðla, en ég get þó fullyrt að vera mín á Facebook er fyrst og fremst vegna þess að í gegnum það tól er megnið af tómstundum dætra minna skipulögð. Hina miðlana nota ég mismikið, en Twitter þó mest, …
Nokkrir vinir mínir hafa heyrt söguna af hinu skiptinu sem mamma reyndi að drepa pabba minn. Eitthvert skiptið sem hann átti afmæli, ætlaði hann að gera vel við vinnufélaga sína og gefa þeim köku í tilefni dagins. Það var bökuð þessi glæislega kaka kvöldið áður, og þegar kom að því að fara með hana í vinnuna á afmælisdaginn ætlaði hann að grípa með sér lítinn og sakleysislegann borðhníf til að skera herlegheitin niður á diska handa vinnufélögunum. Þegar móðir rak …
Nýjustu innlegg