Af skyldulesningum.

Það má með sanni segja að þessi grein Guðmundar Kristjáns sé skyldulesning, þessar línur eru eins og skrifaðar útfrá mínu hjarta. Og ég get einnig sagt sem íbúi í austurbæ Reykjavíkur (svoleiðis) að ég lifi að einhverju leiti þá sýn sem hann talar fyrir, þ.e.a.s. 20 mín hverfið, allt sem mig vanhagar um er í 20 mín göngufjarlægð frá mér, að ég tali nú ekki um ef ég sest uppá reiðhjól. Í þessu eru fólgin ómetanleg lífsgæði.

Continue Reading

Lyfleysu fíkn.

Nýlega rakst ég á stórkostlegan pistil um lyfleysu fíkn, viðkomandi skrifar hann útfrá hljómburðarástarblætis (er þetta einusinni orð?) tímabili í lífi sínu, en það má heimfæra þetta uppá hvaða fíkn sem er raunverulega.

Continue Reading

Sorglegar fréttir

The Verge, sem að mínu mati er með betri vefritum í dag, færir okkur þær sorglegu fréttir að einn af mínum uppáhalds leikurum hafi fundist látinn á heimili sínu 46 ára gamall. Hann var óborganlegur sem Lester Bangs í Almost Famous. Hann var æðislegur í Punch-Drunk Love og langsamlega það allra besta sem sást í Along came Polly. Philip Seymour Hoffman skilur eftir sig skarð.

Continue Reading

Það er merkisafmæli.

Í ár eru 10 ár síðan Bandaríkjamenn töpuðu sakleysi sínu, það eru tíu ár síðan heimurinn breyttist varanlega fyrir 90 milljón sjónvarpsáhorfendur, það eru 10 ár síðan litla systir Michael Jackson flassaði heimsbyggðina í hálfleik í SuperBowl, í tilefni af því hefur ESPN tekið saman stutt myndband þar sem farið er ítarlega yfir 9/16 úr sekúndu úr lífi okkar allra.

Continue Reading

Af gáfnafari Sjónvarpa.

Það er ekki langt síðan ég keypti mér nýtt sjónvarp, það var að vísu ekki merkilegt til þess að gera, 40″ heimskt og án veggfestingar, en Full HD þó. Síðan þá hafa tvö trend verið mjög yfirgripsmikil er varða Sjónvörp, annarsvegar var það þrívíddar sjónvarpið sem er með hallærilegri hugmyndum sem ég man eftir að hafa heyrt, hin er hygmyndin um snjall sjónvarp. Nú veit ég ekki um kosti þess að eiga slíkt tæki en þegar ég hugsa til þess

Continue Reading

Hugrenning.

Undanfarið hefur Egill Helgason og fleiri verið að vinna útfrá grein Þórs Whitehead í Sögu um “ástandið” Sjá hér, og hér meðal annars. Nú er ég ekki svo gamall að ég muni þessa tíma en ég ólst nú samt upp í þorpi í nálægð við herstöð og þessi hugsanaháttur sem Þór skrifar svo um var svo greinilegur í því litla samfélagi sem ég ólst uppí. Lýsti sér best í því að hermennirnir fengu ekki að fara í sund í þorpinu.

Continue Reading

Site Footer

Sliding Sidebar