……… sagði yndæl kona sem varð á vegi okkar seinnipartinn í gær, ástæðan var sennilega piknikkið sem við tókum með okkur í Laugardalinn, herramanns máltíð, Spaghetti Bolognese ala elmarinn, klikkaði reyndar á parmesan ostinum, en það verður að hafa það. Bolognese kjötsósan mín er fyrir löngu orðin heimsfræg, og hvað er betra en að deila svoleiðis lystisemdum? Vissulega er það sennilega langt frá því að vera daglegt brauð að fólk mæti í Laugardalinn, dúki upp borð og skelli á það …
Blog Posts
Í ár geri ég ráð fyrir amk. 2 ferðum til Munchen, núna í Júlí/Ágúst einn mánuð með fjölskyldunni minni að slappa af í sumarfríinu mínu og síðan aftur í nokkra daga fyrir Októberfest til að leika mér með vinnufélögunum mínum, báðar þessar ferðir verða skemmtilegar, þó þær verði mjög ólíkar. En gulltrygg leið til að búa til spenniginn er að fara að plana hvað eigi að gera, á hvaða tíma og með hverjum. VInnufélagaferðin verður vissulega öðruvísi, aðallega vegna þess …
Síðan ég eignaðist síma með rúmlega meðalgreind hef ég orðið á undraverðum tíma alveg fastur í hlustun á hin og þessi podcöst, og þó að ég kunni ágætlega við íslenskunina hlaðvarp þá er hún bara ekki nógu útbreidd til að ég noti hana hér í þessum pistli. RÚV, sem gárungarnir kalla risaeðlu sinnir þessu hluverki mjög vel og eru flestir þættir orðnir niðurhalsfærir innan við hálftíma eftir að hann var frumfluttur. Þetta er þjónusta sem RÚV á heiður skilinn fyrir …
Nýjustu innlegg