Þá er þetta síðan fyrir ykkur, hann Kevin C Tofel er kominn af stað með frábæra síðu sem fjallar um Chromebækur.. About Chromebooks púnktur com. Þessu fagna allir góðir menn myndi ég halda. Sennilega hinir líka. Ég er enn að keyra Pixelbókina mína og gæti ekki verið ánægðari með hana, stórfín vél til að grípa með sér. Nú síðast bætist við app stuðningur við Linux öpp, ofan á Android app stuðning sem var bætt við fyrir ári síðan. Það tók …
Category: Daglegt
Virkilega misgáfulegt raus.
Minn kæri hýsingaraðili leysti mig úr snörunni og núna er vefritið secure, þessu fagna allir góðir menn, ekki síst ég. Að horfa þarna upp, vinstramegin við lénið mitt og sjá allt grænt, það er notalegt. Kærar þakkir vinur minn 🙂 Follow @elmarinn …
Á morgun verð ég á UTmessunni að vanda, ekki nema áhorfandi, en það er samt alltaf gaman að fara og sýna sig og sjá aðra. Þá verður fyrsti góði prófsteinninn á Pixelbókina mína. Nú fæ ég mörg áhugaverð viðfangsefni fyrir þessa vél að kljást við og reyna virkilega á hana í undarlegum aðstæðum. Follow @elmarinn …
Þeir sem þekkja mig vita að ég hef mikinn áhuga á kaffi, ég drekk mikið af kaffi á hverjm degi, en ekki nóg með það, heldur er ekki alveg sama hvaða kaffi ég drekk. Vissulega er ég frekar óldskúl þegar kemur að því að hella uppá heima hjá mér, og finnst vel vön Mokka kanna frá Bialetti gefa mér jafnbesta bollann alltaf…. Þetta er umdeilt, og ég viðurkenni það fúslega, er ekki algerlega alheimsskoðun. En allavega, ég hef lengi talað …
Til að fá að leyfi til að starfrækja hótel undir nafninu Marriott, þarf WiFi búnaður í hótelinu að vera frá einum ákveðnum framleiðanda, og sá framleiðandi er ekki Cisco, eða Aruba.. Titillinn Googlari dagsins, fyrir þann sem finnur svarið. Follow @elmarinn …
Áskær eiginkona mín gaf mér einhverja þá bestu jólagjöf sem ég hef fengið, og það er svo sannarlega gjöfin sem heldur áfram að gefa. AeroPress kaffi pressa, fyrir þá sem ekki vita, þá er ég ákveðinn kaffipervert og þarna er komin mjög góð nálgun fyrir þá sem vilja fá gott kaffi á fljótlegan og einfaldan hátt. Á einfaldan fljótlegan hátt er hægt að fá frábærann bolla af kaffi. Mæli með þessu. Flóknir og duldir núanasar í kaffinu fá að njóta …
Í gærkvöldi var eins og svo oft nýverið Pixelbókin mín mér hugleikin, enn var ég með þá fullyrðingu í huga að þetta væri aðeins 90% tölva, og að ég þyrfti alltaf sér vél til að tækla 10%in sem eftir eru. En í framhaldi af hugleiðingum um vef CAD lausnir eins og OnShape, sem ég benti á í fyrradag. Þá rakst ég á vef útgáfu af SketchUp, en það er eins og margir efalaust vita þrívíddar teikniforrit sem gefur hverjum sem …
Smá disclaimer til að byrja með…. Ég er einn þeirra sem á síma sem ekki hefur headfóna tengi, og ég hata það. Ég þoli ekki að ég geti ekki bara keypt þá headfóna sem mig langar í og notað þá með tækinu sem ég vel mér að eiga. Að þessu sögðu þá hefur Google gert mér þann óleik að framleiða síma, sem á flesta mælikvarða er frábært tæki, með bestu myndavélina frábært stýrikerfi og svo framveigis, en með þann leiða …
Ég minntist á vefvæðingu CAD lausna í fyrri pistli og hvernig sú þróun myndi hjálpa að færa Pixelbók úr 90% tölvu í 100% Onshape er slík þróun sem gaman verður að fylgjast með í náinni framtíð. Hér er komin fullvaxin CAD lausn í áskrift sem gerir fyrirtækjum kleyft að sníða sér stakk eftir vexti (nei ég er ekki á prósentum) Öll þróun í þessa átt þar sem notandinn hefur yfir að ráða fullþroskuðum vafra og vafrinn er glugginn að öllu …
Nýjustu innlegg