Núna sit ég á Landvetter flugvellinum í Gautaborg að bíða eftir flugi heim í gegnum Kaupmannahöfn. Ég hef áður lýst því hvernig Keflavíkurvöllur hefur versnað á undanförnum árum, og er svo komið núna að það er ekki einusinni hægt að fá almennilegt kaffi þar. Landvetter, þó að hann sé mun minni í umfangi en Keflavík, hefur hann góða flóru af veitingum, afþreyingu og umfram allt, virkilega gott kaffi á nokkrum stöðum. Svona 3ju bylgju kaffi fyrir þá sem það vilja. …
Category: Daglegt
Virkilega misgáfulegt raus.
Nýlega skrifaði ég stuttann pistil um hversu kyrfilega Pixel 3 lak í aðdraganda þess að hann var kynntur, og að ólíklegt væri að nýja tæki Google, Pixel 3a yrði jafn kyrfilega lekið…. Það þarf ekki að spyrja að því, internetið bað mig um að halda aðeins á bjórnum sínum... Hér kemur allt fram, stærð, litir, upplausn, minni, örgörfi, notendaleiðbeiningar, verð og allt hitt… Semsagt, það er opinbert Pixel 3 línan öll fær þann heiður að vera sú lína sem mest …
Það er talsverð hreifing á íslandi eins og annarsstaðar þar sem fólk vill losna við myndlykla símafyrirtækjanna, oftast fyrir annarskonar myndlykil, annaðhvort í formi Apple TV eða einhverskonar Andorid TV kassa. Nú tilheyri ég ekki endilega þeim hópi, og fer myndlykill Símans ekki í taugarnar á mér, en ég hef engu að síður ákveðna samúð með þessu sjónarmiði og að sjálfsögðu ætti það að vera valkostur að vera með aðgang að sjónvarpsþjónustu Símans og Vodafone alfarið í appi. Einn þeirra …
Glöggir lesendur vita sem er að fyrir nokkrum vikum uppgötvaði MacRomurs að Netflix hefði hljóðlega fjarlægt AirPlay spilunar möguleika úr iOS öppum sínum. Þetta er aðgerð sem gerir það að verkum að iOS notendur neyðast til að nota TVOS app (eða Netflix appið sem kemur uppsett á snjallsjónvarpinu þínu) Netflix, til að neyta Netflix efnis. Hér vantar smá forsögu og kaldhæðni. Í fyrsta lagi er Netflix að gera nokkra hluti hérna eins og að taka aftur stjórnina á upplifun sinna …
Um daginn færði ég ákveðin rök fyrir því að tölvupóstur væri að mörgu leiti góður samfélagsmiðill, vissulega skortir hann margt sem fólk á að venjast í samfélagsmiðli, en það er líka margt sem mælir með því að nota bara tölvupóst sem samfélagsmiðil. En hann er vissulega ekki jafn dýnamískur og aðrir samfélagsmiðlar. En það er annar möguleiki, og það er eitthvað sem Google hefur verið að byggja upp í Google Photos, en með því að búa til myndamöppu sem maður …
Nýlega, nánar tiltekið á CloudNext2019 hélt Google viðburð sem fjallaði fyrst og fremst um þann búnað sem Google hefur verið að framleiða. Og eftir að hafa farið yfir söguna aðeins og sagt frá Pixelbook (sem undirritaður hefur átt í rúmlega ár, og verið mjög ánægður með) og Pixel slate sem hefur fengið mjög misjafna dóma (Raunar var ódýrasta útgáfan svo afl lítil að framleiðslu á henni var hætt nánast samstundis), kynnti fyrirtækið það sem er í pípunum. Árið 2017, kynnti …
Það er í sjálfusér ekki það einfaldasta að reyna að setja nokkur orð á “blað” um það hvað er nýtt í annarri betu af Android Q, fyrst og fremst vegna þess að það er ekki svo mikið á yfirborðinu sjáanlegt, en þó eitt og annað sem er vert að nefna. Enn sem komið er, eru það aðeins Pixel símarnir sem styðja þessar útgáfur. Betri hljóðstyrksstillingar, ein af stóru umdeildu breytingunum í Android P var að í stað þriggja hljóðstyrksstilla áður …
Á ensku er stundum talað um sleeper hit, t.d. bíómynd sem byrjar rólega í bíóunum en verður svo á endanum, einhverra hluta vegna mjög vinsæl. Nýlega kynnti Apple vöru sem ég held að verði mikið slepper hit, ekki vegna þess að hún eigi ekki eftir að seljast í bílförmum strax í upphafi heldur vegna þess hve mikið betri hún verður seinna á árinu. Apple AirPods er sennilega best heppnaða vara Apple síðan iPhone kom á markaðinn. fyrir nokkrum dögum fengum …
Eins og allir sem þekkja mig vita er ég mjög nýjungagjarn þegar kemur að tech búnaði, reyndar á þessi fullyrðing við um tölvur og síma meira en nokkuð annað. En ég hef mjög gaman af því að grúska í tækjum og þjónustu. Einmitt vegna þess er ég mjög oft spurður ráða um hvaða tæki einhver ætti að kaupa, eða jafnvel spurður útí tæki sem gjöf. En að gefa tæki sem gjöf er ekki alveg svo einfalt, til að gjöfin skili …
Nýjustu innlegg