Allsstaðar annarsstaðar en í Bandaríkjunum er blómlegur markaður fyrir hóflega verðlagða síma, markaður sem OnePlus eignaði sér á sínum tíma, eitthvað sem má kalla 80% flaggskip. Eða þar um bil, ég er að tala um síma sem gefur notandanum 80-90% af upplifun notanda af alvöru hero tæki, fyrir kanski helminginn af verðinu. Ástæða þess að þessi markaður er ekki blómlegur í bandaríkjunum er í mjög einfölduðu máli sú að þar fær fólk nýjann síma á 2-3 ára fresti fyrir andvirði …
Category: Tech
Ég er Tech junkie, hugrenningar um allt um tækni.
Ég hef áður skrifað örfá orð um streymistríðið sem hófst þegar Netflix tók þá stefnu að framleiða mikið af eigin efni í stað þess að láta hefðbundna aðila framleiða efni og kaupa það af þeim. Sú ákvörðun að mörgu leiti neyddi aðila eins og HBO, Disney, CBS og aðra til að fara í að útbúa sína eigin streymisveitu, ákvörðun sem gerir það að verkum að í stað þess að neytendur geti fyrir fasta upphæð á mánuði fyrir aðgang að öllu …
Það er enginn skortur á Android TV boxum í heiminum, úrvalið er nær frá því að vera algjört sorp, og kosta því lítið, yfir miðjuna þar sem Mi Box S trónir á toppnum yfir bestu kaupin, uppí mögulega besta Androd TV boxið á markaðnum Nvidia Shield TV, ég á t.d. Mi Box S boxið sem hefur reynst mér mjög vel, það er sæmilega snappy, með helling af möguleikum, styður 4K upplausn og utanáliggjandi drif og fleira í þeim dúr. Í …
Nei, þetta er ekki jafn skelfilegt og Pixel 3 og 4 lekarnir, sem voru svo ýtarlegir að það þurfti varla að kynna þá síma, Rick Osterloh hefði alveg eins getað lagt þá síma á borðið og sagt blaðamönnum að nota þá. En þetta er engu að síður vandræðalegt, síminn sem átti að fá formlega kynningu á Google I/O núna 12. maí, virðist núna nánast vera kominn í sölu, myndir af Pixel 4a í sölupakkningum hafa birst á twitter. Umbúðirnar eru …
5 mánuðum eftir að Stadia opnaði fyrir þá sem þjást af straxveiki (hér er sá sem þetta skrifar ekki undanþeginn) hefur Google loksins opnað fyrir “gjaldfrjálsa” spilun, hún er gjaldfrjáls að því leitinu til að það þarf ekki að greiða áskriftargjald til að hafa aðgang að þjónustunni, en leikina þarf spilari engu að síður að kaupa, og það eru enn ákveðin fríðindi fólgin í því að greiða áskriftina, ódýrari leikir, nokkrir ókeypis leikir í hverjum mánuði, 4K streymi (vs. 1080p …
Orðið á götunni er að önnur kynslóð þráðlausra heyrnatóla Google, sem eiga að heita PixelBuds 2, já ég veit… Nafnið er alveg jafn vont og áður, jafnvel verra ef eitthvað er. Þau birtust í eitt augnabli á vefsíðu B&H í síðasta mánuði, þar sem verðið $179 var staðfest en án afhendingar dagsetningar. Sú síða var tekin niður nánast um leið. Síðan þá hafa þessi heyrnatól birst hér og þar í hinum ýmsu kerfum, FCC staðfesting, BlueTooth vottun og fleira í …
Núna þegar við erum öll meira og minna föst heima hjá okkur, að bíða eftir að samkomubanni verið aflétt eða amk létt á takmörkunum er fullkomið tækifæri til að finna sér myndsímtala app sem virkar, eins og staðan er í dag er FaceTime sennilega best þekkta slíka lausnin, en hún er því miður aðeins aðgengileg tæplega helmings snjallsímanotenda á Íslandi, rúmlega helmingur þarf að nota eitthvað annað. En þetta þarf ekki að vera svona, því mikið magn svona appa er …
Í árdaga android, fyrripart árs 2011 var Google Music þjónusta sem ég var mikill aðdáandi fyrstu 6 mánuðina eftir beta gangsetningu var þjónustan aðeins í boði sem invite þjónusta. þegar þarna var komið gafst mér færi á að hlaða upp allt að 20.000. lögum án endurgjalds, ég man þegar ég fékk invite frá góðum vin hvað það gladdi mig. Þarna var framtíðin komin í mínum huga. Enda rippaði ég geisladiska eins og vindurinn þarna um sumarið til að hlaða inní …
Þetta var bara grín, eftirréttar nöfnin eru farin, því miður. En það breytir því ekki að nánast eins reglulega og klukkan tifar, kemur ný útgáfa af Android stýrikerfinu, hún er nr. 11 að þessu sinni og það er aðeins verið að leyfa okkur að kíkja innum gluggann á því hvað við fáum að sjá í nýrri útgáfu. Þessi útgáfa heitir því tilkomumikla nafni Android 11 DP1. Þetta er fyrsta af 6 útgáfum áður en formleg útgáfa nr. 11 kemur út. …
Nýjustu innlegg