Nú er ég einn þeirra sem hef virkilega gaman af því sem ég er að gera í vinnunni, í reynd svo gaman að mér finnst vinnan ekki beinlínis vera vinna heldur virkilega gaman að mæta og leysa verkefni dagsins.
Ég ætla að ganga svo langt að segja að mér leiðist í sumarfríi, en nú er svo komið að ég er búinn að vera 3 vikur rúmar og á tvær vikur tæpar eftir, það hjálpaði mér mikið að fá hluta af fjölskyldunni minni til að heimasækja okkur, en hitarnir sem hér hafa geysað hafa ekki hjálpað til. Það mætti segja að þegar hitastigið fer dag eftir dag yfir 36°C þá er um bölvað óveður að ræða. Það má segja að ég sé farinn að þrá íslenskar 16°C og smá úða.
En fyrir þá sem eru í sambærilegri stöðu og ég, þá mæli ég með góðri, eða lélegri, bók. Radler í hitanum og kaffi fyrir geðheilsuna.