Strætó er frábær ferðamáti.

Ég elska að nota strætó til að komast leiðar minnar, ég nota hann nánast daglega til að komast í og úr vinnu. Það virkar, ég kem við á heimleiðinni og kaupi í matinn, þetta er ekki stórmál. Það sem þarf að bæta er áreiðanleiki og tiltækileiki. Það þurfa fleiri að eiga kost á því að losna undan því að reka einn bíl utan um hvert bílpróf á heimilinu. Því þarf Strætó einfaldlega að virka, fleiri þurfa að upplifa þá ró sem felst í því að sitja í strætó á leið sinni til vinnu eða skóla og jafnvel byrja vinnudaginn, skoða tölvupósta, raða niður verkefnum dagsins í huganum. Þetta er vanmetinn ferðamáti sem ég nýt að nota. Það besta við þennan ferðamáta er að þessar 25 mín sem tekur mig að fara hurð í hurð vill enginn neitt frá mér, þetta er eini tími dagsins sem ég á fyrir sjálfan mig.

(Visited 1 times, 1 visits today)

Leave a reply:

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Site Footer

Sliding Sidebar