Á svipuðum tíma birtast tvö tæki sem bæði teljast „ný“. Ekki endilega vegna þess að tæknin sjálf sé glæný, heldur frekar af því að þau koma frá nýjum aðilum sem hafa ekki verið á þessum vettvangi áður.
Apple sendir loks frá sér samanbrjótanlegan síma, iPhone Duo, og er látið með af sumum – bæði í gamni og alvöru – að þar fari fyrsti samanbrjótanlegi síminn í heiminum. Fyrstu dómarnir eru að birtast núna og flestir eru sammála um framúrskarandi smíðagæði og góðan skjá (sannarlega með broti, þótt sumir vilji meina að það sé ósýnilegt). Einnig er fjallað um þær málamiðlanir í stýrikerfi og hugbúnaði sem eru óumflýjanlegar, sér í lagi í því formi sem Apple valdi.
Þetta form tel ég sannarlega vera það rétta. Við erum að tala um síma sem er lágur og breiður í stað þess forms sem hingað til hefur verið ofan á – hefðbundin 16:9 hlutföll, eða það sem upphaflegi Pixel Fold, Samsung Galaxy Fold og fleiri hafa notast við (um 2:1 á ytri skjánum og 1:1 á þeim innri þegar hann er opnaður). Þetta form kallar vissulega á ákveðnar málamiðlanir; að vélrita á ytri skjánum gerir lyklaborðið til dæmis ansi smátt.
Tæknimiðlar og gagnrýnendur sem ég tek mikið mark á gefa þessum nýjasta síma Apple nokkuð góða einkunn. Þar brjóta menn gjarnan eigin reglu um að gefa tækjum aldrei 7 í einkunn. Sú regla er sett á þeim forsendum að hún þvingi gagnrýnandann til að taka afstöðu: Er þetta 6 – sem er þokkaleg einkunn en segir fólki að bíða frekar – eða er þetta 8? Átta er einkunn sem segir kaupanda að hann geti óhræddur slegið til og að tækið muni leysa öll verkefni sem því er ætlað að vinna. Sjö er pínulítil hvorki-né-einkunn; þægileg til að móðga engan. Önnur regla sem þessir sömu gagnrýnendur setja sér er að dæma tækið eins og það er í dag, ekki út á einhver óljós framtíðarloforð um að hlutirnir verði betri síðar meir. (Það er svo annað samtal hvort ekki ætti að taka þessi tæki fyrir á útgáfudegi og heimsækja þau aftur ári síðar til að sjá hvort og hvernig þau hafa batnað.)
The Verge gaf Apple Vision Pro til dæmis 7 á sínum tíma, sem þau viðurkenna fúslega í dag að hafi verið of rausnarlegt. Reglulega rifjar ritstjóri miðilsins upp hvernig hann var of gjafmildur þegar kom að myndavélum iPhone-símanna, þótt nú sé komin ákveðin ládeyða eða slétta í framfarir á þeim vettvangi hjá flestum framleiðendum. Ég held að iPhone Duo sé einmitt dæmigert 6-tæki eins og er, þótt augljós tækifæri séu til úrbóta í hugbúnaði sem gætu hæglega togað það upp í 8 á fáeinum mánuðum. En það er einmitt þetta sem gerist þegar kemur að vörum frá Apple; þetta sem hefur verið kallað Apple Reality Distortion Field – eða veruleikabjögunarsvið Apple. Vörurnar fá ákveðinn afslátt einfaldlega af því að þær koma frá Apple. Til að gæta allrar sanngirni má segja að Apple standi oftast við sín loforð og gott betur, en það breytir því ekki að beita þarf sömu mælistiku á alla framleiðendur neytendatækja.
Hitt nýja tækið sem ég vísaði í fékk ég í hendurnar í gær: Dell XPS 3 Googlebook. Til að byrja með er um dásamlega fallegt og vel smíðað tæki að ræða, með bjartan og fallegan skjá ásamt ARM-örgjörva sem vekur væntingar um frábæra rafhlöðuendingu. Stýrikerfið byggir á Android en kallast Googlebook OS. Undir niðri er Linux-kjarni og við fáum hér raunverulega Debian Linux-skel í hendurnar, þótt um sýndarvél sé að ræða.
Stýrikerfið sjálft er ekki tilbúið – það er alveg ljóst. En á þeim skamma tíma sem ég hef notað vélina má þó sjá að hlutirnir eru að þróast í rétta átt. Flestar aðgerðir eru kunnuglegar öllum sem þekkja til í Android-umhverfinu, tilkynningakerfið er framúrskarandi og mikið úrval er af smáforritum, þótt mörg þeirra séu enn hönnuð fyrir lófatölvur og farsíma en ekki stóra skjái.
Samhæfingin milli Android-síma og þessa stýrikerfis er sennilega það dýpsta og best heppnaða sem við höfum séð hingað til. Ég get ræst app í símanum, klárað það sem ég þarf að gera á tölvunni og lokað því aftur – allt án þess að líta á eða snerta símann. Þegar þetta virkar er þetta stórkostlegt, en í tveimur af hverjum tíu tilfellum er eitthvað brotið. Það veldur því að maður treystir þessu ekki fyllilega enn sem komið er. Vonandi lagast það með tímanum. Sum öpp virka alls ekki, ekki einu sinni þótt ég nái í .apk-skrána og hliðarhlaði (e. sideload) forritinu fram hjá Play Store.
Þetta tæki fær hjá mér hreint 6 á skalanum 1 til 10. Vélbúnaðurinn sjálfur, smíðagæðin og allt sem frá Dell kemur er örugglega 8 eða 9. En tanntökuvandræði stýrikerfisins og hugbúnaðarins draga heildarupplifunina niður í 6 – minnsti samnefnarinn ræður. Kannski verður þetta orðið 8 eftir eitt ár. Hver veit? Nett tölva sem auðvelt er að grípa með sér er alltaf góður kostur.