Ég hef mjög gaman af nýjum tækjum, ég uppfæri símann minn oftar en góðu hófi gegnir, ég fikta með linux, ég leik mér í console á windows tölvum. Ég hef gaman af allskonar pop culture, það má segja að ég sé stereótýpan af gen-x nerði. Allt þetta passar við vinnuna mína sem ég hef svo stórkostlega gaman af, ég hlakka til að mæta í vinnuna á hverjum degi og takast á við allskonar tæknileg vandamál og læra eitthvað nýtt.
En þá er komið að nýju tæki sem ég er vandræðalega áhugasamur um, þrátt fyrir skelfilega vont nafn. Google er í samstarfi við nokkra af stærstu tölvuframleiðendum í heimi um að framleiða nýjar fartölvur. Googlebooks heita þær og keyra á Android sw stack sem kallast GooglebookOS, og eins og ég sagði. Þá er þetta áhugaverð nálgun, sér í lagi fyrir fólk sem á Android síma. TheVerge fjallaði um þessar fyrstu 5 tölvur nýlega og gaf bjartsýniseinkunn. Ég verð að segja, Dell XPS tölvan er sérlega áhugaverð í mínum huga, það má nánast segja að ég get ekki beðið eftir að fá að leika mér með svona tæki. Getur það tekið við öllum verkefnum dagsins?
Ég var, og er, á Chromebook vagninum. Stórkostleg nálgun á hversdags compute vandamál. Vinna í tölvupósti, vafra netið og skoða samfélagsmiðla. Ég hef átt tvær Chromebooks og þær hafa nýst mér frábærlega sem nokkurskonar sófavélar. En þetta tæki er eitthvað annað, platform sem ætti að geta klárað meira fyrir flesta. Synchið við Android símann ætti að vera sérlega áhugavert fyrir Android notendur.