Nú þegar ca tveir mánuðir (einn og hálfur til tveir og hálfur, eru í að Google Stadia verði hleypt af stokkunu er spenningur farinn að gera vart við sig. Google stríðir okkur með fréttum af því að Stadia Founders edition pakkarnir séu uppseldir í flestum löndum Evrópu (sem fá þjónustuna). Fyrir þá sem ekki vita, inniheldur Founders Edition: Sérstakann controller, í miðnætur bláum lit, Chromecast Ultra, 3. mánaða áskrift að Stadia Pro, Destiny 2 í heild sinni. Að auki inniheldur …
Category: Tech
Ég er Tech junkie, hugrenningar um allt um tækni.
Nú er það staðfest að næsti viðburður Google fyrir kynningar á nýjum tækjum verður það 15 okt, 2019. Síminn sjálfur er sennilega verst geymda leyndarmál í heiminum, amk varðandi síma. Við vitum að hann verður með 90Hz skjá, jibbí, við vitum að hann verður með tveimur “bak” myndavelum og ToF nema, við vitum að hann verður með þykku enni til að hýsa fullt rassgat af nemum (ekkert notch, sem er kostur) á borð við andlitsskanna, soli radar og eitthvað fleira, …
Þá getur oft verið erfitt að stoppa þá, Google hefði átt að læra þetta með Pixel 3 í fyrra. En sá sími hafði lekið svo kyrfilega að það var ekkert eftir að segja frá. Ég hef verið með slíkann síma núna í ár, og finnst hann algerlega frábær, fyrir utan hið nánast pervertíska “notch” sem er skelfilegt tískuslys. Slík lausn, á aldrei rétt á sér. Frekar vil ég hafa hátt enni, en notch. En hátt enni er einmitt það sem …
Það eru svosem ekki nýjar fréttir að Google Assistant sé varla að spila sömu íþrótt og Siri, hvað þá í sömu deild, þegar kemur að raddþekkingu og úrvinnslu á fyrirspurnum. S.s. hversu nytsamlegur aðstoðarmaðurinn er, (þetta er alveg óháð því hversu kjánalegur mér finnst ég vera þegar ég gelti skipanir á ensku til Google Assistant, því það hefur lítið breyst). En kjaftasögurnar á götunni núna segja nýjustu viðbót Google Assistant vera eitthvað sem allir notendur tækninnar ættu að taka fagnandi. …
Það vita það allir sem vilja vita, að besta general purpose farsímamyndavélin á markaðnum er enn þann dag í dag á Google Pixel 3, það fer að breytast fljótlega, ef ekki núna 10 sept, þá í byrjun okt í seinasta lagi. Það ber að geta þess, að jafnvel þó að ég standi enn og aftur við fullyrðinguna, besta myndavélin er sú sem þú ert með. Þá er erfitt að horfa framhjá þeirri staðreynd að þratt fyrir ótrúlega framþróun farsímamyndavéla, þá …
Það er ekkert leyndarmál að ég er mikill Pixel aðdáandi, og reyndar mikill talsmaður Google ef ég á að vera alveg heiðarlegur. En það ætti ekki að koma neinum á óvart. Ég hef átt alla Nexus/Pixel símana sem komið hafa út frá og með Nexus 4… Eða frá því að Google sagði, “við höfum lagað myndavélina” (Nexus 4) til þess augnabliks sem Google raunverulega gerði það (Pixel XL) og núna með bestu all round myndavélina (Pixel 3 XL). Núna hefur …
Í dag pantaði ég mér Stadia Founders edition. Fyrir þá sem ekki vita, þá er Stadia streymisleikjaþjónusta Google sem verður hleypt af stokkunum í Nóvember. En þeir sem þekkja mig þá er ég ekki mikill leikjaáhugamaður, en það getur vel breyst í svona casual gaming hjá mér, t.d. í sumarbústað eða eitthvað slíkt. Til að byrja með reikna ég með að ég þurfi að dulbúast sem Þjóðverji þangað til Stadia verður í boði á Íslandi. Stadia áskrift er tvennskonar, það …
Fyrir nokkrum mánuðum, og aftur fyrir nokkrum vikum, gerði ég grín að því hversu kyrfilega Google, eða einhver annar, náði að leka Pixel 3 og Pixel 3a símunum sem komu frá fyrirtækinu síðastliðið haust og aftur í vor. Þeir lekar áttu það sameiginlegt að Google virtist ekki hafa mikla stjórn á þeim, og við vissum nánast allt um símana þegar þeir voru kynntir. Í tilfelli Pixel 3 var þetta svo pínlegt að það eina sem Rick Osterloh gat gert á …
Eitt af skemmtilegri verkefnum sem X Development, áður Google X, hefur komið að á undanförnum árum, er project Loon. Fyrir þá sem ekki vita hvað Project Loon er, þá er um að ræða verkefni þar sem Google sá fyrir sér að setja loftbelgi upp í heiðhvolfið í umþaðbil 18km hæð með það að markmiði að veita hinum 5milljörðum manna á jörðinni aðgang að “háhraða” internetþjónustu. Hraðinn sem talað er um nær hefðbundnum 4G/LTE niðurhalshraða. Tæknivarpið hjá Kjarnanum/Símon fór nýlega í …
Nýjustu innlegg