Rúm vika af samlokusíma.

Ég er núna búinn að vera með Pixel Fold í rúmlega viku, tæki sem ég hef haft gaman af síðan það kom í hendurnar á mér. Auðvitað hjálpar að stýrikerfið er það sama og ég hef notað lengi og þekki, nálgun Google á Android. Því ekki er hægt að tala stock Android eða eitthvað slíkt frá því að Google setti Pixel línuna á markað. Stock Android er enn til og er notað af mörgun til að keyra allskonar tæki.

Pixel Fold hefur sýnt mér framá að það er eitthvað í þessu, eitthvað sem kitlar og er áhugavert. Það er gaman að hafa í reynd netta spjaldtölvu fyrir þau verkefni sem krefjast aðeins stærri skjás en litla skjáinn framan á tækinu fyrir daglegu verkefnin. Þetta gerir tækið mikið sveigjanlegra en bara einn skjár með mjög klunnalegum möguleika á að keyra tvö öpp hlið við hlið. Við þetta bætist svo kjarnorkuákvæðið að stinga símanum í samband við dokku, varpar öllu bixinu uppá stórann skjá og þá er notandinn kominn í raunverulegt Linxu umhverfi með linux skel og whatnot. Þetta kemur að sjálfsögðu ekki í stað vinnustöðvarinnar þinnar, hvort sem það er einhverskonar Windows, Linux eða MacOS PC vél. En það má bjarga sér á þessu ef allt sem þú vinnur við er staðsett í einhverju skýi. Ég er bara nokkuð hrifinn. Fær meðmæli frá mér. En ég er enn á því að Google hafi gert alvarleg mistök að fara frá þessu formi, þar sem síminn lokaður er 17,4/9 og opinn 6/5, en á símunum sem síðar komu eru hlutföllin nær því að vera 20/9 lokaðir og nærri því 1/1 opnir. Sem er í grunnin svipuð skjáhlutföll og Samsung og flestir framleiðendur hafa verið að vinna með.
Þetta skjáhlutfall var nokkuð nýtt á sínum tíma og gerði símann strax áhugaverðann, núna hefur Google alveg farið frá þessu formi og Samsung sett einn í sölu sem er um það bil þarna og Apple að sögn að fara að setja síma með sambærilegum hlutföllum í sölu núna í haust.

Eftir að hafa keyrt á sambærilegum síma í mjög mörg ár var hressandi að prófa eitthvað nýtt. Það sem stendur í vegi fyrir að versla slíkt tæki fyrir mig er einfaldlega verðið, það má gefa sér að þessi tæki séu að dansa öðruhvoru megin við 400þús. Það er einfaldlega erfitt að réttlæta slíka fjárfestingu fyrir einhvern sem hingað til hefur verið foldable forvitinn. En það er sannarlega eitthvað þarna sem er áhugavert. Ég er aðdáandi, það er óhætt að segja það.

(Visited 1 times, 1 visits today)

Leave a reply:

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Site Footer

Sliding Sidebar