Lengi hef ég haft áhuga á að eignast samanbrjótanlegann síma, en hingað til ekki tímt vel norðan við 350þús fyrir slíkt tæki. Það var því með mikilli ánægju þegar ég rakst á notaðan fyrstu kynslóðar Pixel Fold á ebay fyrir lítinn pening og var hægt að koma í hendurnar á mér fyrir engann pening, sá kom út fyrir 3 árum núna og er enn að fá uppfærslur. Eftir að hafa dundað mér með símann núna í nokkra daga þá verði ég að viðurkenna að það er eitthvað þarna. Fyrir það fyrsta þá er þetta eins og áður sagði, fyrsti samanbrjótanlegi sími Google og kom út um leið og Pixel 8 línan.
Fyrirtækið hafi áhugaverðar hugmyndir um það hvernig samanbrjótanlegur sími ætti að vera, fyrir það fyrsta þá er formið á honum meira í ætt við vegabréf, eða Moleskine bók, lokaður er hann stuttur og breiður, opinn nánast fernigslaga. Þessir 3 sem hafa komið síðan eru meira í ætt við Samsung samanbrjótanlegu línuna nokkuð hár og mjór lokaður en opinn ekki alveg jafn ferningslaga. Og til að vera alveg heiðarlegur, þá kynnti Samsung nýlega tæki í þessu formi, Samsung Galaxy z fold ultra. Eins hafði OnePlus kynnt síma í þessu formi, Apple mun að öllum líkindum kynna iPhone Ultra í haust með þessu formi þegar þau finna upp samanbrjótanlegann síma. Og ég verð að viðurkenna að mér þykir miður að Google hafi ekki haldið áfram að vinna með þessa hugmynd.
Fyrir minn smekk er þetta vegabréfsform skemmtilegt, það er hrein unun að lesa bók í þessu tæki og gaman að horfa á video á þessum skjá. Hann er samt nokkuð þungur, þó ég gæti sennilega alveg vanist því. En ég er ekki sannfærður um að ég hefði jafn gaman að þessu tæki í hefðbunnda forminu sem kom síðar. Ég mun sennilega halda áfram að leika mér að þessu tæki og sjá hvaða vandræðum ég get komið mér í með hann.