Að þyrla upp ryki, og hvernig við sjáum í gegnum það

Núna eftir sveitarstjórnarkosningar verður rótað upp mjög miklu ryki um spurningu sem í reynd skiptir engu máli varðandi framtíð íslands. Að því leytinu til að já við spurningu sem stendur til að spyrja 29. Ágúst breytir engu á íslandi, og nei breytir í sjálfu sér engu heldur, öðru en því að þá er búið að taka einn valkost af borðinu fyrir okkur sem samfélag. Fyrir mína parta er mjög einfalt að segja já í ágúst en, fari svo að já verði niðurstaðan þá, verður mun erfiðara að velja svar við framhaldsspurningunni. En það er spurning hvers svar hefur mjög mikil áhrif á framtíðina á íslandi.

Sem dæmi má segja að ég hef ekki sterka skoðun á því hvað gjaldmiðillinn okkar á að heita, en mér finnst það hvorki óeðlileg né ósanngjörn krafa að almenningur geti fjármagnað það dýrasta sem flestir kaupa á lífsleiðinni á einhverju sem má líkja við eðlileg kjör. Flestir andstæðingar inngöngu segja það einfalt mál að tryggja slíkar aðstæður en þá er mjög undarlegt fyrst það er svona einfalt afverju stjórnmálamennirnir sem hafa stjórnað íslandi síðustu áratugi, og flestir eru skoðanabræður þessara sömu andstæðinga, hafa ekki farið í þau mál á löngum valdatíma? Við höfum fengið “lága” óverðtryggða vexti í umþaðbil korter á þeim tíma sem hefir liðið frá því að Davíð Oddsson settist í stól forsætisráðherra.

Gímaldið er fréttavefur sem hefur sambærilega nálgun og kjarninn á sínum tíma, og var í aðdraganda síðustu kosninga einfadlega besti staðurinn til að fræðast um stefnur flokkanna í skipulagsmálum, menntamálum og nánast öllu öðru sem snertir okkur á sveitarstjórnarstiginu, í það minnsta í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu. Núna ætlar Gímaldið að beita sömu töfrum á umræðuna um ESB aðildarumræður, ætlar að “kíkja í pakkann” fyrir okkur. Hvet hvert og eitt sem forvitið er að nota þennan vetvang til að raunverulega fræðast um kosti og galla. Nú síðast er t.d. mjög fræðandi umfjöllun um landbúnaðarmál, eitthvað sem ég tel þegar á hólminn er komið að bændur á íslandi munu sjá að þeirra framtíð er betur tryggð innan ESB en í óbreyttu ástandi. Eins held ég að í reynd verði niðurstaðan varðandi sjávarútveg og fullveldismál mjög vel ásættanleg. Það verða aðrir kaflar sem reynast okkur erfiðari að kyngja.

(Visited 3 times, 3 visits today)

Leave a reply:

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Site Footer

Sliding Sidebar