Gervigreind kom inní heiminn á leifturhraða og gjörbreytti helling, mikið af fólki óttast mjög mikið þróunina og býst við því að gervigreind komi til með að taka 80% allra starfa í heiminum, ég held að það verði ekki raunin. Ég held að við séum á toppi Gartner Hype lúppunnar varðandi væntingar um framtíðarmöguleika gervigreindar. Og hingað til hefur það verið svo að tækniframþróun hefur alltaf breytt störfum, fækkað þeim á einum stað en fjölgað þeim margfalt á öðrum, ég held að það verði líka raunin hér.
En einn staður þar sem gervigreind er að valda miklum usla er í framleiðslu auglýsinga, sér í lagi fyrir lítil fyrirtæki sem aldrei voru góð í að markaðssetja vörurnar sínar. Núna getur þetta litla fyrirtæki sem mögulega framleiðir framúrskarandi vöru en hefur aldrei haft getu né bolmagn til að markaðssetja hana svo nokkru nemi, hvað svo sem sú vara kann að vera. Hvort það eru járnfestingar fyrir loftnet, breytingar á bílum eða hvað svo sem það kann að vera. Núna getur eigandi þessa fyrirtækis einfaldlega sett inn til fyrirtækja á borð við Meta og Google ljósmynd af vörunni sinni með kannski nokkrum lykilorðum um hana og gervigreindartól býr einfaldlega til markaðsefni sem getur nokkrar mínútur að framleiða og hægt að breyta áherslunni á nokkrum sekúndum til að ná til mjög ákveðinna markhópa. Hérna vandast málið siðferðilega. Annars vegar eru þessi litlu fyrirtæki loksins að fá tækifæri til að koma gæðavöru á framfæri og auka sölu sína. Hins vegar setur þetta störf í skapandi greinum undir meiri þrýsting en nokkru sinni fyrr. Þetta er sannkallað tvíeggjað sverð.
Það er að segja að litlir sjálfstæðir skapandi einstaklingar, ljósmyndarar, grafískir hönnuðir og whatnot, þeir eru skotmarkið í augnablikinu.
Þetta gerist einfaldlega vegna þess að fyrirtækin sem halda úti þessum gervigreindar módelum þurfa á tekjum að halda og þarna er mikið af tekjum sem hægt er að næla í.
Hluti ástæðunnar að fólk notar gervigreindartól sem leitarvél er að leitarvélar á netinu, hvort sem það er Google, Bing eða eitthvað annað eru farnar að verða ansi lélegar, mikið af auglýsingum fyrst, síðan SEO væddar niðurstöður áður en eitthvað með súbstans birtist. Og þó gervigreindarbottarnir séu hvorki gallalausar né frábærar leitarvélar sem ljúga að okkur af miklum sannfæringarkrafti og skila síðan niðurstöðu sem er hönnuð til að halda notandanum lengur í tengdum. Niðurstaða bottans við hverri leit kemur orðið alltaf með einhverskonar hvatningu til að halda áfram að skoða einhverja vinkla af þessu efni sem viðkomandi var að leita sér upplýsinga um. En þrátt fyrir augljósa galla eru þeir samt betri en hefðbundin leitarvél, ef ég gæti fengið Google leitarvélina frá því fyrir 10-15 árum, þá væri ég ekki að notast við Gemini (sem er best í íslensku af þessum gervigreindartólum) til að leita á internetinu, þá væri hún aðeins verkfæri til að hjálpa mér með tæknilegar upplýsingar.
Hún hefur ekki, og getur sennilega ekki, komið í stað BuJo í fallegri Moleskine bók til að halda utan um það sem ég er, þarf og vil gera. Á meðan BuJo hjálpar mér að skipuleggja hugann, þá hafa gervigreindartólin tilhneigingu til að dreifa athyglinni í milljón áttir og fóðra áunna athyglisbrestinn minn.