Núna styttist í að Ísland verði fyrsta landið til að slökkva alveg á 2G og 3G þjónustu farnetsrekenda. Flest Evrópulönd hafa nú þegar lokað eða eru amk langt komin með að slökkva á 3G þjónustu en ætla að halda 2G í gangi í nokkur ár í viðbót. Ísland fór aðeins aðra leið, og var lokið að slökkva á tækninni sem breytti heiminum, 2G eða GSM, í byrjun árs 2026. Nú hafa 2 af 3 farnetsrekendum nánast lokið við að loka 3G og einn er kominn af stað, líkleg verður slökkt á síðasta 3G sendinum á íslandi fyrir Maí lok. Þetta eru stórkostlegar breytingar sem við erum að upplifa og mun þegar erfiðleikarnir eru yfirstaðnir skila okkur betra farneti, farneti sem ég myndi segja að bjóði uppá þjónustu á heimsmælikvarða alveg óháð því hver farntesveitandinn er á íslandi. Við erum í öfundsverðri stöðu á íslandi bæði er varðar útbbreiðslu, gæði þjónustu og verð.
Það er ekki líklegt að það muni breytast mikið á næstu misserum, við verðum enn í öfundsverðri stöðu. Svona sem hluti af því sem fór í gegnum huga minn með morgunkaffinu.
Það er að koma að þessu, mikla breytingar á farnetum í gangi.
(Visited 2 times, 2 visits today)