Dell XPS 13 Googlebook

Nú er ég búinn að vera að vinna með Dell XPS 13 Googlebook í tvær vikur, ég hef notað hana til að skrifa, vafra um netið, fikta við allskonar. Það er skemst frá að segja, að þessi vél er dásamleg. Hún er vel smíðuð, stýrikerfið með ákveðna hnökra er skemmtilegt og samþætting við símana mína er að mestu hnökralaus. Skrár og skráarkerfi símans er einfaldlega aðgengilegt í gegnum app sem kallast files, þar er skráarkerfi tölvunnar, Google Drive og skráarkerfi símans aðgengileg án nokkurra vandkvæða. Sama má segja um að streyma öpp af símunum, ef ég vil ekki setja upp eitthvað ákveðið app á tölvuna en er með það á öðrum hvorum símanum mínum, þá eru þau bara aðgengileg í gegnum app streymi, get breytt stærð og hlutföllum. Klárað það sem ég vil gera og loka aftur, allt án þess að aflæsa eða líta við símanum mínum. Tölvan kemur með Antigravity appi, þar sem ég get notað gemini Argon til að fikta með forritun og annað. Þetta minnir mig í fljótu bragði á árdaga Androind, þar sem hlutir voru á fleygiferð og allskonar hugmyndir í gangi um það hvað við viljum að svona tæki geri. Þetta er skemmtilegt.

Með góðum kaffibolla og nokkrum mínútum, er hægt að skapa eitthvað alveg nýtt, eða eitthvað eldgamalt.

(Visited 1 times, 1 visits today)

Leave a reply:

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Site Footer

Sliding Sidebar