Er internetiđ dautt, eđa deyjandi?

Það er kenning sem hefur verið á sveimi um netið frá því um 2020 eða 2021, kenning sem segir að internetið sé hreinlega dautt. Á ensku kallast hún „Dead Internet Theory“. Á spjallborðum í undarlegum kimum netsins fór fólk að tala um að internetið, eins og við þekktum það – drifið áfram af raunverulegu fólki og efni búnu til af mönnum – hafi í raun dáið í kringum 2016 eða 2017. Í dag finnst mörgum þetta alltof raunverulegt vegna þess gífurlega umfangs sem gervigreindarumferð og samfélagsmiðlabottar, hannaðir til að æsa upp og skauta fólk í hópa, hafa tekið á sig. Facebook er á kafi í alls konar bottaumferð, Spotify fjarlægði nýlega tugi milljóna laga sem búin voru til af gervigreind og X (áður Twitter) samanstendur sennilega að meirihluta af einhvers konar bottum í dag.

Talið er að í dag sé einungis 47% af umferð á netinu af völdum mannvera og hin 53% séu einhvers konar bottaumferð. Auk þess er áætlað að um 57% af öllum HTML-fyrirspurnum á netinu séu frá bottum. Þar af eru um 40% flokkaðir sem „slæmir“ bottar – þeir sem eru að þefa uppi öryggisholur, prófa stolin auðkenni og fleira í þeim dúr – á meðan aðeins um 13% telst vera „góð“ bottaumferð. Þar er átt við botta sem kortleggja netið, hjálpa leitarvélum að finna efni og uppfæra gagnagrunna. Þetta er vissulega erfitt að mæla nákvæmlega, en net- og öryggisfyrirtæki á borð við Cloudflare hafa metið stöðuna svona. Internetið er hins vegar svo víðáttumikið og snúið að ómögulegt er að mæla alla umferð af fullkominni nákvæmni.

Ég veit bara að internetið í dag er ekki jafn skemmtilegt og það var á árunum 2005 til 2015. Þá voru vefsíður raunveruleg samfélög þar sem fólk gat skipst á skoðunum án stóryrða, og allir kimar mannlegrar hegðunar áttu sér sitt horn þar sem fólk gat átt augnablik saman. Ég varði sjálfur miklum tíma á IRC á sínum tíma og eignaðist þar dásamlega vini, bæði í hinum stafræna heimi og í raunheimum. Við hittumst á þessum rásum, spjölluðum, fórum svo í körfubolta, hittumst á kaffihúsum eða börum og skemmtum okkur saman. Ég sakna þessa internets. Nútíma samfélagsmiðlar hafa lítið gert til að byggja upp raunveruleg samfélög, þótt þeir henti vissulega vel til að viðhalda tengslum sem þegar hafa orðið til.

Það er sannarlega ákveðin nostalgía í þessum hugleiðingum mínum. En mögulega er internetið, því miður, bara dautt.

(Visited 1 times, 1 visits today)

Leave a reply:

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Site Footer

Sliding Sidebar