Þessi sería frá WDR og 1LIVE er mörgum of góð… Algert möst see hjá honum. Mig langar líka að benda á úttekt hans á Under Pressure með Queen og David Bowie…. …
Category: Tónlist
Þessar daglegu hugrenningar um tónlist. Hversu gáfulegar sem þær mega vera.
Vefritið vill óska lesendum og velunnurum nær og fjær gleðilegs árs. Á áramótum er til siðs að líta um farinn veg og minnast þess góða, skemmtilega sorglega og slæma og allt þar á milli, þetta ár var verulega gott fyrir mig persónulega þó að ég hafi eins og svo mörg önnur ár ekki sinnt vinum nægjanlega vel, það er komið á bökket listann minn að kalla til hlutaðeigandi reglulega til að eiga með þeim kvöldstund. Þið vitið hverjir þið eruð…. …
Einusinni var ég mikill Smashing Pumpkins aðdáandi, og plöturnar Siamese Dreams,Mellon Collie and the Infinite sadness, ásamt Adore sem misskildu meistaraverki komast ofarlega á alla lista hjá mér. Undanfarin ár hefur fjarað verulega undan Billy Corgan og það er erfitt fyrir mig að staðsetja það sem gerðist, kanski var það bara dauði shoegazing tískunnar, eða að hann óx uppúr því að vera reiður ungur maður í að vera bitur gamall kall með milli lendingu í einhversskonar sátt. Ég barasta veit …
Eftir 6 daga, þ.e.a.s þann 14 Des verður uppáhalds platan mín 35 ára, ef það þarf virkilega afsökun til að hlusta hana, þá er þetta alvöru tilefni, hún hefur elst vel að mínu mati og má segja að aðeins sé eitt subpar lag á henni. Þessi plata inniheldur allt, Rokk, pönk, reggí, pólítík í textagerð og hvaðeina, meistarastykki. Hvernig er annað hægt að syngja með? súper stöff takk fyrir. …
Já nei, ég veit að ég mun ekki standast þessa áskorun. En það er samt alltaf gaman að reyna, áskorunin felst semsagt í því að reyna eftir fremsta megni að skrifa daglega hugleiðingu hér inn. Ég á mér mitt “heróín” sem er podcast hlustun, lengi vel var lítið um gott stöff á íslensku þó að alvarpið hafi verið að sinna þessu nokkuð vel og þar inni er besta podcast sem flutt er á íslensku, hefnendurnir. Ég gerðist áskrifandi á alvarpinu til …
Er þetta besta Medley allra tíma? Ég veit það ekki en það kemst allavega mjög hátt á listann, versta er að síðan ég rakst á þessa klippu sem er úr Ziggi Stardust: the movie á Gizmodo er ég búinn að rúlla henni í gegn nokkrum sinnum og kominn með tónleikana í playlista. Óumdeilanlega mælikvarði á því hve flott þetta er: …
Billy Joel, einn af merkilegri tónlistarmönnum samtímans á afmæli í dag, það er vegna þess sem hann á lag dagsins en það er lag sem ég haf alltaf haft mikið dálæti á og finnst hann eiga alveg stórkostlega sprett í, þó að hann sannarlega hafi átt stærri og vinsælli lög í gegnum tíðina. Billy Joel – New York state of mind Frábært stöff alveg hreint. “Only Billy Joel can consistently cover a three point spread.” …
Fats Domino hér með eitt af mínum uppáhalds… Setja í gang og hækka, það er málið. …
Eins og þeir sem þekkja mig vita þá er ég mikill áhugamaður um vínyl og á orðið nokkuð myndarlegt safn sem ég get kanski helst þakkað vini mínum honum Herði, en einnig öðrum vinum og vandamönnum. Þetta er svona áhugamál sem fyllir lífið af einhverju skemmtilegu, það er eitthvað við það að setjast niður með albúm, smella nálinni niður og garfa í albúminu, ásamt því að platan fái að rúlla, að njóta hennar í heild sinni. Nú er það vissulega …
Nýjustu innlegg