VIð þekkjum þetta öll, á vinnustöðum eru tvær týpur af kaffi fólki, það eru kaffiperrarnir eins og ég, og svo hinir sem lifa einfaldlega á kaffi sama hversu staðið og soðið það er orðið. Við þekkjum þetta líka með uppáhellta kaffið, það er annarsvegar þetta sem einhver sem kann að hella uppá, hellir uppá og það er gott í nokkrar mínútur en stendur svo og hægsýður það sem eftir lifir dags, síðan er það hinn kaffi uppáhellarinn, þessi sem kann ekki neitt og er alveg sama, en hann hellir uppá eitthvað. Sem er mjög sennilega ódrekkandi sull og fær síðan standa og hægsjóða það sem eftir lifir dags. Hvort sem er, þá er niðurstaðan ódrekkandi.
Þetta skiptir máli, og vinnustaður með vott af metnaði á að bjóða uppá fleiri valkosti, ég er þakklátur fyrir þessa 5 valkosti sem ég hef í vinnunni minni. Þó ég gangi alltaf bara í ítölsku kaffivélina, þá virði ég alveg val þeirra sem vilja staðið uppáhellt kaffi. More power to you. En kaffi er lífins elixír, það bætir, hressir og kætir. Gefur hraustlegt og gott útlit.