Þessi gamli brandari hefur verið mér ofarlega í huga undanfarnar vikur.
Hann er ca svona:
Maður nokkur var á ferð um afskekktan veg þegar sprakk á einu dekki bílsins og ekki annað að gera en skipta um dekk. Þegar hann ætlaði að grípa til tjakksins var hann ekki á sínum stað. Og nú voru góð ráð dýr. Hann svipaðist um og sá að talsvert innar í dalnum var bóndabær. Þess fullviss að þar fengi hann tjakk lánaðan gekk hann af stað. Hann sér fyrir sér hlýjar móttökur og verða boðinn velkominn af hinni alkunnu íslensku sveitagestrisni.
Á göngunni fer efinn smám saman að sá fræjum í huga hans. Hvað ef ekki fyndist tjakkur sem passaði undir bílinn? Hvað ef enginn væri heima? Hvað ef bóndinn myndi fara fram á greiðslu fyrir lánið? Hvað ef bóndinn vildi bara ekki lána honum tjakk?
Nú var heldur betur farið að sjóða á okkar manni og hann herti gönguna. Hann bankaði á útidyrnar á bænum og hvæsti þegar bóndinn opnaði í sakleysi sínu: „Þú getur sko átt þinn helvítis tjakk sjálfur.” Að svo búnu snýr okkar maður sér á hæl og rýkur burt í fússi, tjakklausm og skilur mjög undrandi bónda eftir í dyragættinni.
Það er ástæða til að rifja þennan brandara upp núna þegar við fáum loksins, 13 árum eftir að Bjarni Ben, Illugi Gunnarsson, Sigmundur Davíð og fleiri lofuðu henni, um áframhald viðræðna við ESB um mögulega aðild íslands. Það er nefnilega mikið af fólki sem telur sig vita hvað felst í aðild. En ég sem veit það ekki og tel mig ekki vita það, þarf bara að fá meiri upplýsingar, það er því mjög auðvelt fyrir mig að kjósa “Já” núna 29. Ágúst, ef það verður ofan á verður framhalds spurningin, þ.e.a.s. um aðildarsamninginn sjálfann mun flóknari. Hvað það varðar hallast ég stundum að já og stundum að nei, en ofast er ég á “veit ekki” hnappnum, því það vantar svo mikið af upplýsingum. Hver er ávinningur af aðild og hvað kostar sá ávinningur?
Hvet forvitna til að fylgjast með vefnum Gímaldið, því þar hefur mér fundist best umföllun um þetta mál vera, góðir fjölmiðlar skipta máli og þessi er farinn að gera sig mjög vel gildandi í umfjöllun um flókin mál. Hvet ykkur til að styðja þennan fjölmiðil