Ég hef alla tíð verði áhugasamur um tækni, hóflega forvitinn, óheyrilega hrifgjarn og oftast auðvelt að hafa áhrif á mig. Þegar fyrstu gervigreindar bottarnir hófu innreið síðna varð ég fljótt mjög áhugasamur, forvitinn og tæknin sveipti mér upp í hrifngingaræsing.
Það er þekkt að fyrirtækið OpenAI, sem þróar þekktasta gervigreindartólið, ChatGPT hefur tekist að sækja sér meira en $100ma í fjármögnun til að þróa tólið áfram. Þetta hefur valdið því meðal annars að fyrirtækið hefur ekki efni á að vera með prinsipp eða annað þegar kemur að greiðandi viðskiptavinum. Það er þessvegna sem bandaríkjastjórn hefur m.a. nýtt þetta tól í stríðinu við Íran með mjög misjöfunum árangri. Google er með sitt tól, Gemini, og situr peningaprentvél sem getur fjármagnað þróun á Gemini, Anthropic er síðan með tólið sem flestir eru sammála um að sé það besta þegar kemur að forritun og rök “hugsun”, Anthropic hefur hingað til getað staðist freistinguna að leyfa að tólinu þeirra verði beitt gegn bandarískum borgurum eða í hernaðartilgangi. Það er göfug afstað sem ber að verðlauna, afstaða sem ,öfugt við fullyrðingar bandaríkjastjórnar, er fullkomlega lögleg og siðleg.
En með alla þessa möguleika, hvar hafa fyrirtæki á borð við OpenAI lent varðandi hugmyndir um það hvernig þau geti mögulega fjármagnað þessar gífurlegu lántökur sem Sam Altman forstjóri OpenAI hefur farið útí? Júmm, hjá einmanna körlum og boðið þeim uppá gervigreindar “kærustur”. Þegar þér lesandi góður er boðið uppá gervigreindar kærustu á svarið alltaf að vera “nei takk, og vinir mínir sem hafa farið þann veg eru alltaf að verða undarlegri og undarlegri”
Í dag er ég hóflega bjartsýnn á framtíð gervigreindar, en að nýta þessa tækni til að finna kærustu er ekki eitt af notagildunum. Svo mikið er víst, ekki heldur sálfræðingur fyrir öll mín vandamál, það er líka nokkuð ljóst.
Ég nota Gemini pro, sem fylgir með símanum mínum, en væri þar fyrir utan sennilega það tól sem myndi nýtast mér einna best. Þó er ég mjög forvitinn um Claude. Skoðum hann betur síðar.