Margir hafa reynt að útvega raunverulegt desktop umhverfi á farsíma, eða möguleikann á að breyta símanum þínum í vinnustöð fyrir daglega vinnu og svo aftur í símann þinn að degi loknum.
Í Android 16, varð þessi möguleiki raunverulega þroskaður á Pixel símum, ég hef reynt þetta á sjálfum mér. En aðeins í einn dag, niðurstaðan er sú að með raunverulegri Linux skel er þetta viðmót valkostur við mína daglegu vinnu, en þó alls ekki eitthvað sem ég held að ég myndi kjósa.
Aðferðin er einföld, stingur bara símanum í samband við dokkuna á borðinu þínu. Hún er væntanlega með 1-2 skjái tengda, mús og lyklaborð. Við það opnast Android desktop umhverfið með browser og öllum þeim öppum sem við notum á símanum dagsdaglega. Niðurstaðan mín af einum degi er að það megi bjarga sér þarna, en öll windows öpp virka eðli málsins samkvæmt ekki, en á meðan vinnan fer fram í e-mail, vafra og terminal þá má sannarlega bjarga sér á þessu ef tölvan er biluð eða eitthvað slíkt.