Fékk aftur að sjá uppsistandarann Ismo og í þetta sinn í Laugardals höll, hann er dásamlegur uppistandari, kaldhæðinn og þurr húmor sem hittir beint í mark. Ismo gerir grín að sjálfum sér, hversu finnskur hann er, hversu erfitt hann á með að tala og skilja ensku, sér í lagi í bandaríska ensku og mikið fleira í þeim dúr. Hann er fyndinn án þess að vera meiðandi. Ég er sannarlega með harðsperrur í þindinni eftir frábæra kvöldstund.
Það er fátt skemmtilegra en að sitja í sal með öðrum og hlæja innilega.
(Visited 3 times, 3 visits today)