Queens of the stone age var aldrei mitt band, ég bara viðurkenni það fúslega. Ég hlustaði á Songs for the Deaf á sínum tíma og fannst hún frábær, sama með Rated R, en lengra náði það eiginlega ekki. Sennilega kom hún fram aðeins of seint til að lenda almennilega á radarnum hjá mér. En núna þegar tvær vikur eru liðnar frá tónleikum þeirra í Höllinni og ég er enn að melta þessa tónleika, þá er óhætt að segja að ég sé aðdáandi. Frábært tónleikaband, þéttir og vel spilandi. Svalir og um leið einlægir. Stundum þegar maður kemur af tónleikum þá þarf smá tíma til að melta upplifunina, og ég segi ekki að hún hafi verið andleg, en þetta var eitthvað. Snerti einhverja taug sem erfitt er að lýsa. Settlistinn var langur og sterkur, sennilega eins sterkur og QOTSA getur beðið uppá, flutningurinn uppá 11 af 10 mögulegum. Ég þarf sennilega viku í viðbót til að bræða þetta með mér. Það er allavega orðið langt síðan það kom hljómsveit til íslands á þessum stað á ferlinum. Oftast þegar þær koma hingað eru þær á leiðinni að verða alvöru stórar, eins og Muse og Led Zeppelin á sínum tíma, eða voru einusinni alvöru stórar svona eins og Guns ‘n Roses þegar þeir komu hingað. Á þessu eru blessunarlega frábærar undantekningar eins og Metallica, Ed Sheeran og núna Queens of the stone age.
Það eina sem ég veit fyrir víst er að ég vil meira svona, ég vil meiri lifandi tónlist, fleiri viðburði. Ég skal mæta.