Einhverntíman setti ég fram hugmynd um að notast við Bullet Journal aðferðina til að skrásetja verkefni, sinna eftirfylgni með þeim og halda utan um framgang. Nú hef ég notast við BuJo lite í rúmlega ár og virðist mér að þetta sé að virka, ekki bara til að skipulegga sjálfan mig, heldur líka til að skrásetja það sem ég er að gera. Hefur líka hjálpað mér til að fletta upp þegar ég er spurður hvenær eitthvað verkefn, einhver fundur var haldinn og hvað var ákveðið á honum. Nú þegar ég er kominn í minn takt með þetta, þá er um að gera að bæta við og utan á til að láta þetta virka betur.
Fyrir þá sem eru áhugasamir þá er hellingur af efni um Bullet Journaling á youtube, um að gera að skoða þetta og finna út hvað af þessari aðferð virkar fyrir þig, þ.e.a.s. ef þú ert að skoða að skrifa hjá þér meira af því sem þú ert að gera. Og þó það detti niður dagur hér og þar, skiptir það ekki öllu máli.