Svona ef við tökum verðið á íþróttaefni út fyrir sviga, Þá er ísland sennilega besti staður á jörðinni til að horfa á íþróttaefni, Sýn hefur sinnt þessu efni mjög vel í gegnum tíðina, og núna er meirihluti alls efnis á einum og sama staðnum.
Erlendis virkar það á mig sem svo að eigendur réttarins, þ.e.a.s. deildirnar etc. hafi takmarkaðann áhuga á að fólk geti nálgast þetta efni í sjónvarpinu sínu, það er svo flókið að finna út hver er með réttinn að hvaða leik. Sennilega er YouTube TV farið að nálgast þetta í Bandaríkjunum, þar er mikið af íþróttaefni í one stop shop appi.
Þegar allt er tekið, þá hefur fólk gaman af því að horfa á sjónvarp í beinni útsendingu, íþróttir, söngvakeppnir og verðlauna athafnir, allt þetta er að ná til sín mjög miklu glápi.