Sloppið fyrir horn.

Harpa fær húsið að heita, og ég bara verð að segja að mér finnst það alveg ágætt nafn. Verra gat það allavega verið, nafið er allavega íslenskt með nokkuð víða merkingu. Ég er þess alveg fullviss að það er hruninu að þakka að við sátum ekki uppi með álíka nafnskrípi og Dynþór eða Reykjavík International Coference and Music Hall, stytt í RICMH og í framhaldinu farið að reyna að gera gott úr öllu saman og beygja nafnið og talað um að fara á tónleika í Ricmhu. Harpa er mun betra.


One Response to “Sloppið fyrir horn.”

  • Róbert Says:

    Hefði góðærið haldið áfram hefði þá ekki Reykjavik International Concert Hall verið tilvalið, þá stytt niður í RICH

Leave a Reply