Þessir menn eiga skilið Thule.
Hilma Örn Hilmarsson og Steindór Andersen. Ég geri orð þeirra að mínum.
In London town this lying clown
our land he drowns and shatters.
Gordon Brown is going down,
his good renown in tatters.
Hilma Örn Hilmarsson og Steindór Andersen. Ég geri orð þeirra að mínum.
In London town this lying clown
our land he drowns and shatters.
Gordon Brown is going down,
his good renown in tatters.
Ég hef alltaf verið eins duglegur og ég get við að deila þeim uppgötvunum sem ég geri. Hér er komin ein síða sem ég var að uppgötva. Frítt og notendavænt, en er þetta löglegt.
Eða svona næstum því, sumarið ’96 var ég að vesenast útum allt í Svíþjóð að leika mér og að eigin sögn “finna sjálfann minn” en til að vera alve hreinskilinn þá þarf maður ekki mikið að finna sjálfann sig þegar maður er 20, það er ekkert að finna annað en hormóna og annað í þeim dúr. En engu að síður þá hafði lítið þekkt hljómsveit verið að gera eitt og annað í Svíþjóð með plötunni Life, sem hafði komið út árið áður. Ágúst/September þetta ár kom út þriðja plata The Cardigans sem var útbrots platan þeirra, stór fín á allann máta fullt af flottum lögum og ekki skaðaði að Nina Persson er einstaklega mjúk undir augað. Um miðjan september kom út myndin Romeo+Juliet með Leonardo DiCaprio þar sem lagið Lovefool var gert hátt undir sessi.
Hversvegna er ég að rausa þetta hérna, það er jú vegna þess að lag dagsins er opnunar lagið á First Band on the moon, Your New cuckoo. Og megin ástæða þess að rifja þetta allt saman upp er eiginlega aðeins sú að á leiðinni heim í dag heyrði ég restina af þessu lagi og fékk þessa löngun að deila þessu með ykkur. En hafið þið ekki hlustað á þessa plötu, þá er um að gera að gera það, hún eldist mjög vel og má segja öll lögin á henni séu góð.
Það er ekki oft sem ég sakna þess að vera 20, en sumarið ’96 var gott sumar.
Sennilega eru þeir margir sem þekkja þessa síðu, en ég uppgötvaði hana bara nýlega. ImprovEverywhere er síða sem getur komið öllum í gott skap. Til að undirstrika snilldina kemur hérna lítið sýnishorn.
Ég verð að segja að þegar þetta er sett svona fram, þá elska ég hádegismat líka.
Svona vegna þess að ég hef rosalega gaman af þeim, og miðað við allt sem ég hef séð, þá er þetta einhver flottasta tónleikahljómsveit í heiminum í dag.
Nú er bara að finna tónleika og miða í sumar.