Svona fyrir utan það augljósa og segja Handboltalandsliðið, en fyrir mína parta eru það snillingarnir á bakvið ÞorraKalda sem eiga hrósið skilið, þarna er kominn einn besti bjór sem fæst í sölu í Vínbúðinni.
Nýlega var ég plataður í eitthvað sem ég er ekki viss um að sé skynsamlegt að láta plata sig í, að sjálfsögðu klára ég dæmið, annað kemur ekki til greina. Ég er meira að segja nokkuð viss um að ég hafi gaman af því á meðan og eftir að þetta er afstaðið. En núna þegar kaldur raunveruleikinn er hefur sigið inn um öll skilningarvit sé ég hvurslags vitleysu nokkrir bjórar og skemmtileg samræða geta dregið bærilega skynsamt fólk útí. Nýlega lofaði ég að fara í sjósund eitthvert föstudagshádegið. Mér er strax orðið kallt.
Nú hef ég aldrei verið einhver sérstakur aðdáandi Gísla Marteins, þó að ég geti með sanni sagt að ég kunni mjög vel við föðurfólkið hans, en mér er það hinsvega ljúft og skylt að benda á það sem hann er að segja núna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Það er nefnilega þannig að það er heilmikið vit í mörgu því sem hann hefur fram að færa í skipulagsmálum borgarinnar. Ég linka bara á youtube síðuna hans, fyrir þá sem langar að sjá stiklur úr fyrirlestrunum hans. En ég geri samt athugasemd við notandanafnið StudGMB, það vantar bara þýskt pornoskegg og þú hefur komið þér upp nýjum ferli ef borgarpólitíkin klikkar.
Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum og ristið furuhnetarnar á pönnu. Þær eru fljótar að ristast og mikilvægt að brenna þær ekki. Um leið og þær fara að taka á sig dekkri lit er pannan tekin af hitanum.
Þegar pastað er tilbúið hellið þið vatninu frá en skiljið eftir um hálfan til einn desilíter með pastanum. Setjið það aftur í pottinn og hærið sítrónuberki, sítrónusafa, parmesanosti, fetaosti, furuhnetum og loks basillaufum saman við.
Setjið strax á diska og berið fram. Gott er að hafa piparkvörn fyrir þá sem vilja og auka parmesanost.
Björn Valur kveður kunnuglegt stef, reyndar aðeins omvent við það sem áður var, en samt. Í dag kom fram í sjónvarpi einn af höfundum þeirrar tilskipunar sem allt er að setja á annann endann hérna á ástkæra fróni og segir okkur að ábyrgð gistiríkisins (Bretland og Hollandi í þessum tilfellum) sé jafnvel enn ríkari en Íslands þegar kemur að IceSave ábyrgðum, ég persónulega hefði haldið að þessi maður hefði amk. einhverja hugmynd um það hvað hann væri að tala. En það er greinilegt að Björn Valur veit betur, hljómar pínulítið eins og þegar Geir Harði, Ingibjörg Sólrún og allar hinar útrásar klappstýrurnar sögðu alla erlendu hagfræðingana sem sögðu stefna í óefni hérna á Íslandi ekki skilja málið og ég man jafnvel eftir að einum hafi verið ráðlagt að fara í endurmenntun.
Hvernig væri að þingmenn og ráðherrar myndu temja sér örlitla auðmýkt þegar hingað koma útlendingar sem vilja bara hjálpa? Eins væri gaman ef okkur unaðist að koma okkur upp amk. hálf frambærilegu þingi og ríkisstjórn, valdhöfum sem eru ekki bara uppteknir af spuna og annarlegum sjónarmiðum, undanfarnar vikur hef ég komist að þeirri niðurstöðu að Samfylkingu og VG sé aðeins annt um samþykkt þessara laga af mismunandi ástæðum, Samfylkingin virðist trúa á álfa og að samningar um IceSave séu aðgangsmiðinn að ESB og að þegar inn sé komið verði einfaldlega strikað yfir þessar skuldir, VG sýnist mér að ætli að nota þessa samninga í baráttu sinni gegn inngöngu íslandi í ESB, hafa þar naglfasta sönnun fyrir óbilgirni ESB og að það sé ESB og EES um að kenna hvernig fyrir okkur sé komið.
Ég hreinlega get ekki komið auga á neina aðra ástæðu fyrir hversvegna þessir tveir flokkar tala jafn fast fyrir samþykkt þessara laga, ég kem allavega ekki auga á nokkra aðra ástæðu fyrir því að ráðamenn þjóðarinnar, og þá sérstaklega tveir þeir valdamestu tala fyrir málstað gagnaðlia okkar, frekar en að tala fyrir okkar málstað. Nema þau þjáist af Stokkhólms Heilkenni?
Þar fyrir utan fór ég á Avatar 3D í gær, sagan sjálf er jú eldgömul, eitthvað sem við erum búin að sjá reglulega síðan fólk fór að búa til kvikmyndir, en myndin sjálf er hrein og klárt listaverk.
Morgundagurinn er merkilegur dagur fyrir alla HRinga. Því miður kem ég ekki til með að taka þátt í göngunni, en ég hlakka engu að síður mikið til að sjá og skoða nýju húsakynninn.